Það sem fólki dettur í hug!

Mér finnst svo fáranlegt þetta námskeið í kannabisræktun! Maðurinn i gær í ísland í dag var alls ekki málefnalegur og að honum skyldi hafa dottið þetta í hug er bara svo fáranlegt sem hugsast getur. Annars er mest lítið að frétta, fór í göngutúr í dag og þegar ég var hálfnuð á leiðinni til baka var ég komin með hausverk og sjóntruflanir, þannig að mín varð bara gjöra svo og leggja sig, líður miklu betur núna! Krílið hefur verið mjög rólegt í dag og bara verið í afslöppun. Heyrði aðeins í Bryndísi í áðan, hún sagði mér að Gulli væri lasinn, vona að það sé bara þessi flensa og að honum batni fljótt. Hún kíkti víst til önnu í gær og auðvitað fannst henni litla prinsessan algjör engill!! enda ekki annað hægt =0)

This entry was posted in Fréttir and tagged , . Bookmark the permalink.

Comments are closed.