Síðan síðast..
Þarna er ég komin ca 35 ½ viku. Þetta er allt saman að koma!! Ég fór í mæðraskoðun á föstudaginn og þar kom í ljós að krílið er búið að skorða sig, blóðþrýstingurinn var hár og komin +1 eggjahvíta, þannig ég þarf að fara vel með mig. Síðan skrapp ég til eyja með E-bet um kvöldið. Það var ótrúlega fínt að komast þangað og hitta famelíuna. En óttalega eru eyjarnar orðnar tómlegar, það var ekki sálu að sjá á laugardeginum þegar við kíktum í smá bíltúr! Mesta fólkið sem við sáum var þegar við keyrðum framhjá ríkinu. Við kíktum síðan á nýju íbúðina hennar Þóru Siggu, frekar flott íbúð og geggjað útsýni. Það var reyndar soldið erfitt að ganga upp til hennar, tók sinn tíma..hehe Þóra Gísla kíkti þangað líka, hún og Júlli voru að gera tilboð í hús, hvorki meira né minna, þriggja hæða hús á Brimhólabrautinni, vonandi að það gangi hjá þeim að selja íbúðina sína svo þau geti verslað sér hús. Hús sem kostar í rauninni ekki neitt, 6,5 mill minnir mig að hún hafi sagt. Það væri ekki slæmt að geta fengið hús hér í bænum á þeim díl! Á mánudaginn fór ég síðan upp í Hreiður í blóðþrýstingsmælingu, þegar ég mætti þangað var blóðþrýstingurinn hár, enda hafði ég gengið upp, þannig að ég var látin hvíla mig í korter og hann mældur aftur, efri mörkin höfðu þá lækkað en neðri mörkin voru of há, enn var eggjahvíta en samt aðeins minni en á föstudaginn, ég var sett í monitor, það var reyndar alveg fínt, gaman að fá að heyra hjarsláttinn í krílinu og lætin þegar það hreyfir sig, en það var allt í þessu fína lagi með krílið! Og ef ég verð enn í þessu ástandi á fimmtudaginn þá á læknir að kíkja á skýrsluna mína og mig. Svo í kvöld ætla hinar bumburnar í marsgrúbbunni að kíkja í smá hitting í kvöld, það verður frábært að hitta þær aftur.
Sent með GSMbloggi Og Vodafone
| Print article | This entry was posted by gudrun on February 4, 2004 at 20:27, and is filed under Fréttir. Follow any responses to this post through RSS 2.0. Both comments and pings are currently closed. |
Comments are closed.

skilaboð