í sveitinni

hæhæ í gærmorgun fórum við að sækja langömmu út á flugvöll hún kom með okkur heim og ég spjallaði aðeins við hana áður en ég tók lúrinn minn. Þegar ég vaknaði þá brunuðum við með ömmu í sveitina. Í bústaðinn til Sollu og Geira. Kristjan var þar að halda upp á afmælið sitt hann varð 11 ára í gær. Í bústaðnum hitti ég frændfólk mitt sem býr í útlöndum Elísabet og Daníel búa í svíþjóð þau eru barnabörn Sollu og Geira síðan var Hekla Rún þarna líka en hún er einnig barnabarn Sollu og Geira. Síðan var Stebbi frændi þarna en hann og mamma eru systkynabörn. Hann býr í Danmörku og er hérna í smá fríi. Mömmu brá pínu þegar hún sá hann enda orðið langt síðan hún sá hann síðast þá var hann bara 3 eða 4 ára. Bústaðurinn hjá þeim er mjög flottur og það er virkilega fallegt þarna í kring. Kannski á ég eftir að kíkja aftur í heimsókn þegar ég er orðin stærri og fæ þá að prufa heitapottinn. Í gærkveldi gerði ég smá uppreisn og neitaði alfarið að fara að sofa. Vildi bara vera upp í hjá mömmu og pabba og spjalla við þau og hlæja. En ég sofnaði á endanum pabbi fór með mig í göngutúr um íbúðina til að svæfa mig. Svo í morgun um átta leytið fékk ég að koma upp í til þeirra. Í dag fórum við svo til ömmu og afa í efstuhlíðinni. Amma er að aðstoða mömmu við að prjóna. Það er alltaf svo gaman hjá þeim. Amma leyfði mér að skoða tóma mjólkurfernu mér fannst hún alveg æðisleg!!!

kv Andrea Ruth

This entry was posted in Fréttir and tagged , . Bookmark the permalink.

Comments are closed.