hæhæ Helgin mín er búin að vera viðburðarík! Í gær þá fórum við mamma í sólbað á svölunum.. eða ég svaf reyndar hluta af tímanum en þegar ég vaknaði þá fékk ég að prufa sólgleraugun hennar mömmu! Ég var svaka skvísa! Eftir hádegi þá fórum við með Emilíu og foreldrum hennar í Heiðmörk. Það var ofboðslega gaman, ég vildi skoða Emilíu en ég fékk ekki að gera það almennilega.. ég reyndi meira að segja að smakka aðeins á henni en mátti það víst ekki =0( þá sá ég að hún var með snuð í svona snuðbandi og ég kippti því af henni til að skoða en þegar ég ætlaði að smakka á því þá tók mamma það af mér =0( Þá rétti pabbi mér tóma kókómjólkarfernu sem var einstaklega áhugaverð!!! alveg þar til Emilía fékk líka tóma kókómjólkarfernu þá vildi ég fá hennar fernu, því hún var mun flottari en mín.. mamma reyndi þá að sýna mér Trópí fernu en hún var nú bara ömurleg! ég vildi fernuna hennar Emilíu.
Pabbi sýndi mér líka grasið, blómin og trén. Mér fannst þetta allt mjög fínt =0) Ég ætla að fá að fara aftur í Heiðmörk, það verður gaman þegar ég er orðin stærri og farin að hlaupa um, þá fá mamma og pabbi nóg að gera =0) Í dag þá fórum við í kolaportið, ég var að fara þangað í fyrsta sinn. Það var alveg fullt af fólki þar. Ég skoðaði alveg helling enda fullt að sjá =0) Ég ákvað í dag að sleppa seinni lúrnum mínum, ég grét af þreytu en var ekkert að fara að sofa. Ég náði að róa mig niður og þá var ég bara kát og fékk að borða kvöldmat með mömmu, pabbi fór sko inn í keflavík að sjá fótboltaleik. Þannig að við mæðgurnar voruim bara einar í mat.. ég var orðin svo rosalega þreytt að ég fór að sofa kl 8, fékk að sleppa við nuddið í kvöld.
Mamma var að segja mér að auðvitað væri ég þreytt búin að vaka síðan kl 1 í dag fyrir utan einvherjar 20 mínutur sem ég svaf í bílnum… ég riðalaði svefninum mínum í morgun með því að vakna kl 8. Hef verið að vakna sko um hálf sjö síðustu morgna og tekið smá blund milli 8 og 9. Ég er að spá í að vera góð í nótt og sofa bara í alla nótt án þess að vakna, ég er samt voða góð á nóttunni ég vakna bara til að drekka og sofna svo strax aftur nema mamma taki upp á því eins og hún gerði um daginn að gefa mér bara vatn, ég móðgaðist nú bara við það og vakti því í klukkutíma fyrir vikið. Eitt af því sem mér finnst skemmtilegt um þessar mundir er þegar mamma syngur “fyrst á réttunni..” og hjálpar mér að gera hreyfingarnar =0) það er rosa gaman. Pabbi ætlar að fara að setja inn fleiri myndir annað hvort í kvöld eða á morgun.
góða nótt Andrea Ruth