hæhæ Í gær þá fórum við mamma með Emilíu og mömmu hennar í smáralindina. Mamma keypti handa mér vængi því ég er svo mikill engill =0) E-bet og Þóra Sigga komu að hitta okkur í Smáralindinni, þær voru að koma frá köben og það var rosa gaman að hitta þær. E-bet gaf okkur Emilíu mjög sætan náttgalla.
Við hittum líka Hrafnkel og mömmu hans, en hann er marsvinur minn.. hann var reyndar sofandi en óttalega sætur =0) Mamma hefur ekkert farið með mig til að hitta marsvini mína í langan tíma, hún þarf að fara að bæta úr því. Ég neitaði í gær að taka seinni lúrinn minn og sofnaði því korter yfir átta í gærkvöldi fyrir vikið og vaknaði 3 sinnum í nótt. Svo í dag þá neitaði ég að sofna þegar ég átti að sofna, var samt þreytt, einhver uppreisnarhugur í mér.. ég sofnaði því 3 korterum seinna en ég átti að gera og svaf bara í 1 1/2 tíma í staðinn fyrir 3 tíma eins og venjulega.. þannig að núna er ég pínku pirruð.
Mamma og ég fórum yfir fataskápinn minn í morgun. Vorum að taka burt það sem er orðið of lítið og athuga hvort ég væri farin að passa í föt nr 68 sem ég er farin að gera, sum þeirra eru reyndar enn of stór. Mér fannst allt í lagi að máta alla buxurnar því að ég gat skoðað dótið mitt á meðan en þegar ég átti að fara að máta boli og peysur þá kárnaði gamanið.. var að reyna að koma mömmu í skilning um það að ég er ekki alveg á þeim aldri sem hefur gaman af fötum. Vil helst bara fá að sprikla berrössuð. En þetta tók fljótt af og mamma hrósaði mér mjög mikið fyrir þolinmæði.. sem er yfirleitt af skornum skammti hjá mér =0)
Mamma og pabbi eru að planleggja skemmtisiglingu í karbískahafinu, þau eru búin að velja sér ferð en svo kemur bara í ljós hvort það sé laust í þessa ferð. Nú er ég búin að fá alveg nóg af þessu dóti mínu og vil fá að vera góð við hana mömmu mína sem er búin að vera að reyna að kenna mér að vera “aaaa” og ég segji “aaa” en það er kannski ekkert voða mikið “aaa” frekar svona “klíp”
kv Andrea Ruth