Gleðilega verslunarmannahelgi
hæhæ Í gær og í dag vorum við mamma bara heima. Það var svo leiðinlegt veður í dag að það var bara ekki hægt að fara út. Ég svaf í vagninum inni og það tók mig 3 kortér að sofna í fyrri lúrnum en bara 2 mínutur í þeim seinni.. ég var sko ekki alveg sátt með að fara að sofa og lét aðeins heyra í mér. Við erum að fara í sumarbústað á morgun, hann er í Svignaskarði og förum við með Dóra og Ósk. Hlakkar rosalega til, fyrsta ferðalagið mitt =0) Segi ykkur ferðasöguna eftir helgi.
Góða Nótt Andrea Ruth
| Print article | This entry was posted by gudrun on July 29, 2004 at 16:14, and is filed under Fréttir. Follow any responses to this post through RSS 2.0. Both comments and pings are currently closed. |
Comments are closed.
skilaboð