Sumarbústaðarferðin

hæhæ Við lögðum af stað í bústað þegar pabbi var búinn að vinna á föstudaginn, ég og mamma vorum búnar að gera allt tilbúið. Mér fannst frekar skrýtið að vera komin á nýjan stað allt í einu og ég var mjög óörugg. Varð soldið hrædd við hann Halldór en það var komið í lag á laugardeginum. Ég gat ekki drukkið almennilega á föstudeginum því ég var svo mikið að skoða þennan nýja stað sem ég var komin á. Ég var ekkert hrifin af því að fara að sofa þarna. Vildi bara lúlla heima og í mínu rúmi. En það var víst ekki hægt, mamma bauð mér að sofna í vagninum mínum þar sem ég þekki hann en það gekk ekki alveg nógu vel því allt í kring var svo nýtt fyrir mér, það endaði á því að ég sofnaði í fanginu á mömmu og þá lagði mamma mig í vagninn, þau höfðu nefnilega lent í pínu vandræðum með ferðarúmið sem var í bústaðnum, dýnan var svo þunn og lin að hún skrapp bara saman þegar lakið var sett á hana, en svo fékk pabbi snildarhugmynd því ég gat ekki sofið í vagninum, maður getur ekkert bylt sér í honum, hann setti sæng ofan á dýnuna og svo lakið yfir og þá hélst dýnan saman og plús að undirlagið var mun betra. Þannig að ég gat lúllað í rúminu og bylt mér fram og til baka. En ég vaknaði samt mjög oft fyrstu nóttina.

Á laugardeginum kíktum við inn í Borgarnes í leit að millistykki svo að hægt væri að horfa á DVD myndir, en þetta millistykki var ekki til í svona litlu bæjarfélagi, þannig að það var bara brunað aftur í bústaðinn og farið að spila og ég var með pabba í liði í trivjal persút og unnum við spilið!!! Seinni partinn á meðan pabbi og Dóri grilluðu fóru mamma og ósk í pottinn en ég svaf því ég fékk ekki að fara í pottinn út af því að það var ekki nógu gott veður =0( ég fæ að fara bara seinna. Ég svaf aðeins betur laugardagsnóttina, mömmu og pabba til mikillar gleði. Á sunnudeginum þá fórum við í smá lappitúr um sumarbústaðarhverfið og pabbi tók rosaflottar myndir af öllum innanum allan gróðurinn. Hann mun örugglega setja eitthvað af þeim hérna inn á næstu dögum. Þegar við komum heim þá vorum við öll mjög þreytt eftir ferðalagið en það var rosalega gaman, nú er hafinn undirbúningur að næsta ferðalagi.

En við erum að fara til Eyja með Emilíu og foreldrum hennar og E-bet vinkonu okkar mömmu. Hlakkar rosalega til að hitta ömmu, afa og jón sævar frænda. Kannski við fáum heimboð í nýja húsið til Þóru og Júlla. kv Andrea Ruth

This entry was posted in Fréttir and tagged , . Bookmark the permalink.

Comments are closed.