Fuglinn sem mamma átti þegar hún var lítil.
Hæhæ
Mamma er búin að vera að eyða smá tíma á netinu í að finna fuglinn sem hún átti þegar hún var lítil. Það eina sem hún vissi var að hann var af Lory tegund en svo eru til hellings lory fuglar. Hún fann út á endanum hvernig Lory hann var, en hann var Dusky lory.
Hún mamma er orðin gömul og man ekki á hvaða aldri hún var þegar hún átti hann, en hana minnir að það hafi verið áður en Jón Sævar frændi fæddist og hann fæddist 1992. Mamma skírði fulginn Láru og þótti ansi mikið vænt um hann þó hún hefði mikið mikið hátt og væri svoddans sóði. Hún vildi ekki borða fuglakorn vildi bara borða epli. Láru fannst rosalega gaman að vera laus og ´fljúga um og sitja á öxlinni á mömmu og narta í eyrnasneplana og í hársvörðin og leika sér með keðjuna á hálsmeninu hennar. Hún dansaði líka mjög mikið þegar hún var æst og hafði gaman. Lára var ansi hávær og heyrðist í henni alveg yfir í næstu hús þegar hún byrjaði að “garga”. Einn dag í desember þegar mamma var á leiðinni heim úr skólanum þá slapp Lára út og hún fannst ekki fyrr en eftir nokkra daga, á afmælisdeginum hennar Marenar, sem er mamma Elísu Aspar vinkonu og Gyðu Maríu, þá var mamma í afmælisveislu hjá henni og amma hringdi í hana og þá var Lára fundin og sá sem fann hana átti heima við hliðiná Maren þannig að mamma hljóp yfir og náði í hana.
Maðurinn hafði bjargað henni úr klóm kattar.. en nokkrum vikum seinna þá dó Lára þessir dagar í snjónum og hvað sem á daga hennar dreif.. hefur farið með hana.
Hérna fyrir neðan eru myndir af eins fuglum. undir vængjunum er líka smá fjólublár litur, hvítur og svartur.

| Print article | This entry was posted by gislih on January 16, 2005 at 17:48, and is filed under Uncategorized. Follow any responses to this post through RSS 2.0. Both comments and pings are currently closed. |
Comments are closed.
skilaboð