hæhæ
Það snjóaði helling í nótt og allt er orðið hvítt aftur.
Í gær þá fórum við mamma í smáralindina með Emilíu og mömmu hennar. Við Emilía fengum að rölta aðeins um. Það var alveg toppurinn, ég var rosalega hrifin af leikdótinu og langaði að prufa, en mamma sagði að það væri bara fyrir stærri börn. Síðan fannst mér rosalega gaman að horfa niður á allt fólkið, vorum sko á 2 hæð.
Í dag fór ég með mömmu og pabba í blómaval á fulgasýninguna, ég sofnaði í bílnum á leiðinni og ætlaði ekkert að vakna þegar við vorum komin, vaknaði þegar mamma og pabbi voru á leiðinni út svo við snerum við og fórum aftur inn til fuglanna. Þeir voru rosa fallegir og gaman af þeim, mömmu dauðlangar í fugl núna. Það var ein tegund sem var langfallegust það var gulur fugl með bleikan hring um hálsinn. Hann hét eitthvað gulur háls.. eitthvað. Síðan voru í einu búrinu rosamargir ástarfulgar, þeir voru rosalega sætir og aðeins stærri en finkur. Það var alveg hellingur af fuglum.. fullt af tegundum og margir mjög fallegir, endilega farið og kíkið á þá.
Við kíktum svo í kringluna og í nýju íbúðina hjá E-bet vinkonu, hún er nú bara ansi fín , en það þarf að gera helling, kannski við mamma vorum til hennar í vikunni og hjálpum henni aðeins.
Jón Sævar frændi var að fá sér kettling, það verður gaman að eltast við hann =0)
Í kvöld erum við að fara í mat til ömmu og afa í efstuhlíðinni hlakka til að sjá þau.
kv. Andrea Ruth