alveg að verða 1 árs!
Hæhæ
Nú er orðið ansi langt síðan mamma skrifaði fyrir mig síðast. Hún er ekki alveg að standa sig í þessu. En hún er líka soldið oft upptekin við að sinna mér og læra, þannig að við fyrirgefum henni.
En síðan síðast er ég búin að gera helling. Hún Emilía vinkona mín var 1 árs 23 janúar og fórum við í afmælið til hennar. Það var mjög gaman. Ég var pínu feimin fyrst því það var svo mikið af fólki sem ég þekkti ekki. En eftir smá stund þá var allt í fínu lagi. 19 janúar átti Valdi afi afmæli og ég fór þangað í veislu, mamma kom svo þegar hún var búin í skólanum. Ég var pínu feimin fyrst þar líka en svo var allt í lagi. Amma passaði mig rosa vel, en ég er svoddans ömmufíkill, finnst rosa vænt um hana. Afi verður stundum smá spældur. Síðan 27 janúar þá fór ég með mömmu í brunch til Rósu vinkonu hennar, en hún á hana Agnesi Ósk sem er vinkona mín, Emilía og mamma hennar komu líka og Bryndís vinkonu mömmu, önnu og Rósu. Hún var í stuttri heimsókn á Íslandi, hún er í námi út í danmörku. Það var rosalega gaman að hitta hana. Við Emilía dunduðum okkur við að narta í brauð hjá mæðrum okkar og reyna að ná í glösin sem voru á stofuborðinu, síðan vorum við mjög góðar við hana Agnesi, klöppuðum henni og skoðuðum dótið með henni.
Þá um helgina fórum við mamma og pabbi niður að tjörn að gefa öndunum brauð. Ég var mjög hrifin af þeim og reyndi að elta gæsirnar og dúfurnar en það gekk ekki, dúfurnar flugu bara í burtu og gæsirnar hlupu bara út í tjörnina, ég var ekki alveg að gera mér grein fyrir því að ég gæti ekki gengið alls staðar og ætlaði að labba út í tjörnina. Síðan kíktum við í Ikea og mamma og pabbi gáfu mér svona dót eins og er á öllum biðstofum. =0) ég er rosalega ánægð með það.
Ég fór líka til Helgu sjúkraþjálfara 27 janúar. Við mamma héldum að það yrði í síðasta sinn sem ég færi þangað en það reyndist ekki vera raunin. Hlutirnir búnir að breytast, ég fer víst ekki strax í iðjuþjálfun. En Helga var rosalega ánægð með mig. Hún mældi þykktarmunin á handleggjunum mínum og er vinstri handleggurinn einungis 1 cm þykkari en sá hægri, sem er mjög flott þar sem að áður en mamma og pabbi byrjuðu að gera sogæðanuddið þá munaði 3 cm og var það í nóvember. Helga mældi líka lengdina yfir kjúkurnar og er lengdin yfir kjúkurnar á vinstri hendinni 1 cm styttri en á þeirri hægri. Helga talaði um að láta taka röntgenmynd af vinstri úlnliðnum til að sjá hvernig beinin eru og til að hafa sem samanburð seinna meir. Mamma á nefnilega að toga í hendina þannig að það teygist aðeins á henni þar sem að hendin vísar út þá eru sinarnar og vövðafestingarnar styttri litla putta megin á hendinni en lengri þumal fingurs megin og getur það haft áhrif á beinmyndunina. Mamma s.s. teygir á og lætur mig snúa úlnliðnum í hringi á hverjum degi. Þar sem ég er ekki enn að ná snúningnum á hendinni, get ekki snúið hendinni til að setja eitthvað upp í mig þá þurfa mamma og pabbi að finna eitthvað dót sem að örvar þá hreyfingu. Helga lánaði mér svona stóra Crayons liti og blað og var að kenna mér að teikna með vinstri hendinni.. ég náði að gera nokkur falleg strik. Þó ég hafi ekki alveg þroskan enn í að teikna þá ætlar mamma að leyfa mér að lita, til að þjálfa hendina aðeins. Annars gengur rosalega vel með hendina mína. Ég er síðan að fara til Péturs læknis 15 febrúar og til Helgu aftur þann 17 febrúar og þá fer ég líka í 1 árs skoðun.
Ég er farin að borða allt. Borða fisk, kjöt og grænmeti. Ég er hætt á þurrmjólk og komin yfir á stoðmjólkina. Hún fer ósköp vel í mig. Ég er líka hætt að drekka mjólk á nóttinni. Mamma er að reyna að fá mig til að drekka mjólkina úr glasi þegar ég fæ mjólk með kaffinu en ég vil ekki sjá hana þannig, vil bara drekka mjólkina mína úr pela.
Á föstudaginn var ég hjá ömmu í efstuhlíð allan daginn, mamma var heima að læra og pabbi að vinna. Það var ofboðslega gaman eins og alltaf hjá ömmu. Hekla frænka og Esther frænka komu svo og fór Hekla í bað og ég fékk að fara með henni =0) það var ofboðslega gaman. Það er svo rosalega stórt baðkarið hjá ömmu og afa. Síðan á laugardeginum fékk ég að gista hjá ömmu og afa. Mamma og pabbi voru að fara eitthvað út með foreldrum Emilíu. Ég var voðalega góð hjá ömmu og afa. Á sunnudeginum sá svo afi bara um mig þar til mamma og pabbi komu í bollukaffi. Amma var nefnilega orðin lasin.
Núna er um við mamma bara að fara að undirbúa afmælið mitt sem verður á laugardaginn. Það er alveg hellingur sem þarf að gera, taka til og baka og svona. Amma í eyjum og Jón Sævar frændi koma í afmælið mitt og kannski Gunna langamma. Það yrði ofboðslega gaman ef hún væri komin af spítalanum og gæti komið í veisluna.
Bið að heilsa í bili.
Kv Andrea Ruth
| Print article | This entry was posted by gudrun on February 7, 2005 at 17:47, and is filed under Uncategorized. Follow any responses to this post through RSS 2.0. Both comments and pings are currently closed. |
Comments are closed.
skilaboð