2 dagar eftir
hæhæ
Þá eru bara 2 dagar eftir!! Fyrsta árið að líða =0)
Í gærmorgun þegar við mamma vorum að vorum búnar að keyra pabba í vinnuna þá sóttum við Emilíu vinkonu og mömmu hennar. Við fórum með þeim í sporthúsið og ég og Emilía áttum að leika við krakkana en ég var ekkert alveg á því. Ég var soldið lítil í mér, enda mikið af stórum krökkum og ég var enn soldið aum og lítil í mér eftir að ég datt fyrr um morgunin. Ég knúsaði sko mömmu fast þegar hún kom að ná í mig. Hún var ekki lengi að sprikla sem betur fer =0) svo fórum við mamma í Smáralindina að klára að kaupa inn fyrir afmælið mitt. Það var rosalega gaman þar. Alveg fullt fullt af börnum í skringilegum búningum að syngja, ég dansaði og dansaði í kerrunni minni! Þegar við komum heim þá neitaði ég að fara að sofa og var voða góð að leika mér og hjálpa mömmu að taka til með því að týna moldina upp úr blómapottinum og setja hana á gólfið. Mamma var ekki par hrifin af þessari hjálpsemi minni! Dagurinn leið bara fínn, var eitthvað tæp í maganum og var mjög pirruð þegar ég vaknaði af blundinum mínum. Elísabet vinkona kíkti síðan á okkur þegar hún var búin að vinna, hún er svo skemmtileg, hún var að kenna mér að segja “jæja” og gera “týnd” með peysunni minni. Þegar pabbi kom loksins heim úr vinnunni þá var ég sofnuð, svo ég hitti hann bara í morgun. Það er alltaf núna verið að spyrja mig hvað ég sé gömul, kannn að sýna það með fingrunum, sýni reyndar alla 5!! En í morgun var ég farin að ruglast og klappaði saman lófunum og sýndi hvað ég var stór og hvar hárið væri og svona í staðin fyrir að sýna hvað ég væri gömul.
Við mamma erum bara búin að vera að þrífa í dag, ég reyndar skrapp aðeins út á svalir í morgun, alein! eða svona næstum því.. mamma var rétt hjá mér, en hún var samt inni.
kv Andrea Ruth
| Print article | This entry was posted by gudrun on February 10, 2005 at 17:45, and is filed under Uncategorized. Follow any responses to this post through RSS 2.0. Both comments and pings are currently closed. |
Comments are closed.
skilaboð