Afmælið mitt og fleira
Hæhæ
Ég átti frábæra helgi!!
Á föstudeginum þá hjálpaði ég mömmu við að baka og svo fórum við niðrá BSÍ að sækja ömmu, Jón Sævar frænda og Þorgils Árna vin hans. Ég var mjög hissa á strákunum, þeir eru með ansi sítt hár, sem ég komst að, að væri gaman að tosa í. Ég skoðaði þá alveg heill lengi. Það var gaman að sjá ömmu, ég þekkti röddina hennar strax,enda oft talað við hana í síma. Um kvöldið fórum við mamma og pabbi upp í íbúð til ömmu og það var verið að halda upp á afmælið hans Jóns Sævars, hann varð 13 ára þann 11 febrúar. Það var pizzuveisla, en ég fékk ekki að smakka pizzu ég fékk bara grænmeti og seríos. Það var ofboðslega gaman.
Á laugardeginum rann upp dagurinn minn. Við vöknuðum snemma og pabbi fór með mig í sturtu, ég var pínu smeyk í sturtunni enda langt síðan ég fór í sturtu síðast, mamma var að leggja lokahönd á undirbúninginn. Um 3 leytið komu allir í kaffi og þetta var bara ofboðslega skemmtilegur dagur. Ég fékk fullt af pökkum og falleg kort, var mjög hrifin af kortinu frá henni Elísubetu vinkonu en það var fallega gult og með mynd af mér framan á. Hekla frænka var mjög svo hjálpsöm og aðstoðaði mig við að opna pakkana, þetta hefði örugglega ekki hafist fyrr en undir kvöld ef hún hefði ekki hjálpað mér =0) En gjafirnar mínar voru allar mjög fallegar og góðar og vil ég þakka öllum vel fyrir! Þetta fékk ég: Amma, afi og Jón Sævar frændi gáfu mér rauðan dúkkuvagn, svona gamaldags og sæng og kodda fyrir dúkkuna. Amma og afi í efstuhlíð gáfu mér hægindastól, fallega prjónaða peysu og 2 buxur. Anna langamma gaf mér pening í baukinn og sokkabuxur. Gunna langamma gaf mér bleikar buxur og bleikan bol. Mamma og pabbi gáfu mér íþróttagalla, 3 boli og skó með blikkandi ljósi og sokkabuxur. Elísabet vinkona gaf mér silfur armband með upphafsstöfunum mínum. Halldór og Ósk gáfu mér rúllukragabol og sokkabuxur. Ástrós, Daði og Guðrún gáfu mér bleika sandala. Hekla Marey, Esther og Steini gáfu mér litabók, liti og púsl. Kristján frændi gaf mér pening í baukinn.
Pabbi hjálpaði mér við að blása á kertið og ég fékk síðan að smakka á afmælisköku, en það var í fyrsta sinn sem ég fæ eitthvað sem er sætt. Mér fannst kremið mjög gott en var samt ekkert alltof hrifin af þessu, fékk mér bara 4 bita ca og síðan gaf amma mér banana. Ég var í svaka stuði og það var ofboðslega gaman.
Sunnudeginum eyddum við mamma með ömmu, jóni sævari, þorgils árna og lilju huld (vinkonu ömmu) í kringlunni. Það var nú svaka fjör. ég fékk að skoða fiskana í apótekinu og ég fékk að fara í pochontas hringekkjuna og ég fékk að ganga alveg helling!! Ég var mjög hrifin af gólfinu og var alltaf að stoppa til að skoða það síðan tók ég stefnuna inn í Exit og skoðaði fötin þar og risastóru kubbana. Það var sko rosa gaman.
Á mánudeginum buðum við mamma, Emilíu og mömmu hennar, Elísu Ösp og mömmu hennar, Agnesi Ósk, Guðna Grétari og mömmu þeirra í kaffi. Agnes Ósk var skírð á afmælisdaginn minn =0) Það var ofboðslega gaman að sjá þær allar og ég var mjög hrifin af Elísu, var ósköp góð við hana og klappaði henni mikið á kollinn! Ég var líka mjög hrifin af dótinu sem mamma lánaði Agnesi enda ekki séð það síðan ég var lítil. Ég var mjög dugleg að lána stelpunum dótið mitt og var ekkert að stressa mig á því að þær væru að skoða það.
Í gær var pabbi greyið heima lasinn. Hann er nú betri í dag en mamma greyið er orðin verri, hún var pínku að hósta í gær. Ég er sjálf komin með smá kvef og hóstaði pínku í morgun. En vonandi verður það nú ekki meira. Í gær fór ég líka til Péturs læknis og hann var nú ósköp ánægður með mig. En hann sá ekki alveg ástæðu til að taka röntgenmynd af henni eins og Helga sjúkraþjálfari talaði um. Pétur talaði um að það þyrfti að gera eitthvað við þumalinn minn, annað hvort að stífa hann út eða að setja sin í hann svo hann færi út. Hann ætlar að láta Thomas Kaldsted taka ákvörðun um það, en það er læknirinn sem gerði aðgerðina á hendinni minni. Pétur er að vonast til að Thomas komi til landsins með vorinu. Mamma og pabbi eiga að taka upp á video hvernig ég nota hendina og senda Pétri og hann sendir það svo áfram til Thomasar.
Kv Andrea Ruth
| Print article | This entry was posted by gislih on February 16, 2005 at 17:44, and is filed under Uncategorized. Follow any responses to this post through RSS 2.0. Both comments and pings are currently closed. |
Comments are closed.
skilaboð