Hæhæ
Það er orðið ansi langt síðan síðast og margt búið að gerast síðan þá.
Ég varð 1 árs 12 febrúar og átti alveg frábæran dag, fékk fullt af skemmtilegum gestum og fallegar gjafir =0) Fékk meðal annars fullt af fötum, dúkkuvagn, hægindastól, skó, armband, púsl, litabók, liti og dúkku.
Ég fór í síðasta sjúkraþjálfunartímann minn og gekk bara ofboðslega vel þar. Helga sjúkraþjálfari bað mömmu bara um að halda áfram æfingunum, nuddinu og teygjunum og svo á að sjá til hvort ég þurfi að koma aftur í þjálfun ef ég fer í aðra aðgerð. Fór til Péturs læknis líka og hann sagði að Thomas sá sem gerði aðgerðina á hendinni minni komi vonandi í vor og að þá ætli Thomas að kíkja á hendina og skoðaður verður sá möguleiki á að gera aðra aðgerð, sú aðgerð mun fela í sér sinaflutning yfir í þumalinn eða að stífa þumalinn. Thomas mun taka þá ákvörðun hvort það verður gert.
Ég fór í 1 árs skoðun og er ég 74 cm og 9420gr. Rosalega stór stelpa!! Fékk sprautu og var einstaklega dugleg, heyrðist varla í mér þegar hún kom.
Auður frænka úr eyjum kíkti í heimsókn með “litlu” frænku, hún er 6 mánuðum yngri en ég og heitir Ragnheiður Rós. Hún er nú samt ekkert lítil, hún og ég erum næstum því jafn langar. Ég var ótrúlega spennt fyrir henni og vildi knúsa hana vel og mikið. Elísa Ösp kíkti líka á mig um daginn, hún er nú alltaf jafn sæt. Við vorum að leika okkur saman og ég var voða góð að halda utan um hana. =0)
Um síðustu helgi þá komu Amma úr eyjum og Solla frænka í bæinn, þær voru að fara ásamt Veturliða frænda vestur til að pakka niður dótinu hennar langömmu, hún er nefnilega að fara að flytja til eyja. Við mamma tókum strætó og kíktum í heimsókn til Veturliða frænda og hittum þar ömmu og Sollu frænku. Það var ofboðslega gaman í strætó, ég sofnaði reyndar þegar við vorum komnar í strætóinn sem fer inn í reykjavík. Á meðan við vorum hjá Veturliða kom Auður frænka (hún er sko dóttir Sollu frænku) með Ragnheiði Rós og ég varð pínu afbrýðssöm þegar mamma hélt á Ragnheiði. En það lagaðist þegar mamma tók mig upp líka =0)
Í vikunni fórum við mamma og pabbi að gefa öndunum brauð. Það var svaka gaman á meðan við vorum að gefa þeim brauð komu einhverjir strákar og þeir hræddu endurnar óvart og þær flugu allar upp, þá brá mér soldið! ,
Ég var smá óþekk við mömmu og pabba í nótt. Ég vaknaði rétt eftir 23 í gær og mamma reyndi að fá mig til að sofna aftur en það gekk ekki upp. Ég grét bara rosalega mikið og svo jafnaði ég mig og það var eins og ég væri enn sofandi en byrjaði síðan aftur að gráta. Mamma og pabbi prufuðu allt, rugga mér, syngja, tala og gefa mér mjólk en ekkert dugði ég byrjaði bara að hnoðast á henni móður minni og kl 00:30 gafst mamma upp og fór með mig fram, svo að pabbi gæti sofið. Þegar mamma fer með mig fram, þá kveikir hún ekkert ljós og leggst upp í sófa með mig, en ég vildi fara að leika mér, þannig að ég lék mér aðeins í myrkrinu á meðan mamma lá upp í sófa og horfði á Oceans 11 hljóðlaust. Ég var á fleygiferð að skiptast á því að hnoðast á mömmu upp í sófa eða leika mér með dótið, síðan kl 3 í nótt þá sofnaði ég upp í sófa hjá mömmu og þá fór mamma með mig inn í herbergi og setti mig í rúmið mitt, en ég vaknaði aftur. Mamma leyfði mér þá að sofna upp í hjá sér og færði mig aftur yfir en ég vaknaði aftur, þannig að ég fékk að lúlla upp í rúmi það sem eftir var af þessari stuttu nótt. Við mamma sváfum síðan alveg til hálf tíu í morgun og urðum ekkert varar við það þegar pabbi fór í vinnuna. Við mamma kíktum svo í kringluna með Emilíu og mömmu hennar. Það var nú bara ágætlega gaman, lang skemmtilegast þegar við vorum að fara og ég fékk að ganga pínu.
Er núna sofandi, ætla að fara að vakna.
Kv Andrea Ruth