hæhæ
Að hann Gísli skyldi halda að ég hefði gleymt afmælinu hans! Nú er ég bara aldeilis hissa.. hehe Wink
Við mæðgur erum hér í eyjum að aðstoða mömmu við lokaundirbúninginn fyrir ferminguna hans Jóns Sævars en hún verður á morgun. Ég er búin að vera mjög dugleg að henta gömlu dóti frá mér sem að mamma var ekki alveg til í að henta án leyfis. Fyrir utan fermingarundirbúning er mest lítið að frétta úr eyjum nema það að Andrea hefur ömmu og afa alveg í vasanum og þau snúast alveg í kringum hana eins og hún vill. Hún er hæðst ánægð með það. Hún er reyndar alveg viss um að hún sé hérna til að fara í afmæli og að hún eigi afmæli. Hún var ekki alveg að sætta sig við það í gær að pabbi hennar ætti afmæli en ekki hún! Eitt af því skemmtilegasta sem hún gerir hérna er að elta skjöld, en það er kisan hans Jóns Sævars og greyið kötturinn er mjög hræddur við hana og hleypur í felur ef hann svo mikið sem heyrir í henni. Hann leyfir henni nú samt að klappa sér þegar hann er að borða og skvísan er alveg sátt við það.
jæja ætli það sé ekki best að fara að koma sér af stað, það er á eftir að gera alveg nóg, eins og að setja ofan á tertur, gera borðskreytinguna, skúra og fleira.
kveðja