Ég ákvað að taka mér pínu hvíld í kvöld frá ritgerðinni, kannski svona 2 tíma. Annars gengur bara ágætlega með hana. Það er nú samt mikilvægasti kaflinn eftir, niðurstöður og tillögur en það er svo til það eina sem er eftir. Ég er að fara á mánudaginn og taka viðtölin á svæðisskrifstofunni og þá get ég farið að athuga hvort að þær ályktanir sem ég hef verið að draga eigi sér rök að styðjast við. Þetta ætti alveg að ná að klárast fyrir föstudaginn en þá eru skil!
Ef þið hafið áhuga á að lesa eitthvað um efnið sem ég er að skrifa um, þá er um að gera að kíkja á del.icio.us linkana mína hérna til hliðar.
kv guðrún
Víhh bara stutt eftir
mjög gott að klára svona
ójá, hlakka til að klára!!! ég ætla að leyfa mér að fá frí á föstudagskvöldinu, sofa út á laugardagsmorgninum og byrja svo á próflestrinum! Þetta er búið að vera ansi strembin törn.