Þréttandinn

Við skruppum til Eyja yfir þréttandann. Það var löngu ákveðið að við mæðgurnar myndum fara en Gísli ákvað að koma með frekar skyndilega sem var bara gaman. Það var frekar slæmt í sjóinn á leiðinni til Eyja og vorum við mjög heppin að fá kojur til að sofa í þar sem að báturinn var fullur af fólki. Við urðum þó að vera í sitthvorum klefanum en það var ekkert mál. Andrea varð sem betur fer ekkert sjóveik og svaf alla leiðina.

DSC02193.JPG

Við byrjuðum gleðina á að fara á grímuball í Höllinni. Andrea var Solla stirða og fannst soldið skrýtið fyrst að vera með hár. Hún var alltaf að fikta í hárkollunni og hrista hausinn :) Það var ágætlega gaman á ballinu, meira gaman fyrir krakkana heldur en fullorðna fólkið. Það var mjög mikið lagt í suma búningana og hugmyndaflugið var mikið. Það var síðan veitt verðlaun fyrir bestu búningana og sá sem var í fyrsta sæti var loftbelgur. Það var örugglega ekki mjög gaman hjá greyið stráknum, hann var svo vel klæddur, í dúnúlpu og með svaka húfu og í búning sem leyfði ekki mikla hreyfingu. Hann þurfti að standa á sama stað allan tíma með 2 hjálparaðila sem þurftu að styðja við belginn. Jólasveinarnir komu síðan í heimsókn og þeir gáfu börnunum nammi einnig fengu allir medalíu.

DSC02197.JPG

Um 6 leytið hófust svo herlegheitin. Við dúðuðum okkur vel og lögðum af stað. Þetta byrjaði með flugeldasýningu sem var ótrúlega flott!! Að henni lokinni þá kom bíllinn með tröllunum, grýlu og leppalúða akandi. Andrea heilsaði upp á grýlu og leppalúða. Var pínu smeyk þegar leppalúði tók í hendina á henni og grýla klappaði henni á höfuðið :) Jólasveinarnir komu gangandi niður fjallið í þeirri röð sem þeir koma til byggða. Andrea heilsaði aðeins upp á hann kertasníki. Andreu fannst þetta greinilega alveg nægilegt og kom sér þægilega fyrir í kerrunni og sofnaði á meðan við gengum með allri hersingunni upp að malarvelli. Við snerum þá bara við og fórum heim, enda hún sofandi og komin frekar mikil rigning og rok.

DSC02217.JPG

Þetta var mjög gaman, næst nær Andrea vonandi að vaka lengur :) Gísli setur örugglega inn myndir í dag.

This entry was posted in Fréttir and tagged , , , . Bookmark the permalink.

One Response to Þréttandinn

  1. amma efstuhlið says:

    Takk fyrir það elskurnar….

    kv amma í Efstuhlíð…..