Helgin byrjaði á því að við buðum mömmu í mat á föstudagskvöldinu og svo fór restin af kvöldinu bara í vinnu.
Á laugardeginum byrjaði Andrea í dansi hjá Auði Haralds. Við Gísli fórum bæði með henni í tímann. Hún lærði hliðarspor og súperman dans. Hún alveg steingleymdi okkur og það var svo gaman að fylgjast með henni að eiga samskipti við hina krakkana. Sjá hvernig hún er þegar við erum ekki nálægt. Foreldrar voru svo beðnir um að vera ekki með í tímunum, þetta verður hennar að gera en okkur verður boðið að fylgjast með aftur seinna. Eftir dansinn fór ég að vinna. Andrea og Gísli höfðu það bara kósý á meðan.
Um kvöldið fór Andrea í pössun til ömmu og afa. En við Gísli fórum til Önnu og Gulla að elda fondú. Það var ofboðslega gaman og var maturinn mjög góður, hann kom Gísla mjög á óvart. Eftir matinn kíktu vinahópurinn á okkur og fóru strákarnir í bæinn á meðan við stelpurnar vorum heima hjá Önnu að skemmta okkur. Sing star var auðvitað notað mjög mikið. Einstaklega skemmtilegur partýleikur. Myndavélin hennar Önnu náði all mörgum mómentum og pósum. Við stelpurnar kíktum svo á Aroma og vorum þar að dansa þar til staðnum var lokað, hittum þá strákana og héltum heim á leið.
Á sunnudeginum byrjaði dagurinn á því að fara með Andreu og Heklu í fimleika. Það var mjög gott að hafa Heklu með, þar sem hún vissi nákvæmlega hvar allt var. Hún sýndi okkur búningsklefann og var með Andreu í leikjunum og þrautabrautinni. Eftir fimleikana var bara slappað af heima og mest megnis var bara sofið
kv. Guðrún
Það var gott að Hekla gat sagt ykkur til. Henni fannst rosa gaman að vera með Andreu í íþróttaskólanum.
kv.
Esther