Öskubusku kaka

Þá er afmælisdagurinn runninn upp. Skvísan orðin þriggja ára í dag :) Það var haldið upp á afmælið í gær með prompi og prakt. En í gær þá átti Jón Sævar afmæli, hann er orðin 15 ára. Til hamingju með afmælið litli bróðir ;)

Það var ofboðslega gaman að hitta alla familíuna og svo auðvitað alla vinina seinni partinn. En við vorum með þetta í tveimur hollum. Það munaði litlu að það þyrfti að fresta veislunni þar sem Andrea fékk ælupest á aðfaranótt föstudagsins, en sem betur fer var þetta bara svona næturpest. Ég var aftur á móti lasin fimmtudag og föstudag. Þannig að laugardagurinn fór í að baka og taka til. Allt gert á einu bretti. Gísli stóð sig snildarlega velí kökuskreytingum og er alveg augljóst að það verður hans verkefni hér eftir :) Hann tók sig líka til og útbjó handa okkur sushi á laugardagskvöldið, það var ofboðslega gott.

Andrea fékk fullt af fallegum gjöfum, hún fékk rúm og allt tilheyrandi með því frá ömmu sinni og afa í Efstuhlíð. Hún svaf í því í nótt og það gekk vel. Það var hins vega erfiðara að sofna án snuðsins ;) Hún fékk einnig tvenn náttföt og þrenn nærföt, sokkabuxur, þrennar bækur, spil, öskubusku barbídúkku, tvenna kjóla og við gáfum henni svo trönur. Hún getur því krítað, teiknað og málað eins og sannur listamaður :)