Það er lítið búið að vera að gerast á síðunni okkar undanfarið. Það er heldur ekki mikið búið að vera að gerast hjá okkur. Við erum eiginlega að standa upp úr veikindum, Andrea var veik í einhverja 10 daga og ég var veik í viku. Þessi pest sem er að ganga er alveg hræðileg, vona svo sannarlega að flestir sleppi við hana.

Við Gísi fórum á Incubus tónleikana á laugardaginn, það var nú bara ofboðslega gaman
Það er eiginlega svona það eina sem hefur gerst fyrir utan veikindin… jú og alveg rétt, ég er byrjuð að velta fyrir mér framhaldsnámi. Er að bíða eftir svari frá skólanum (Sheffield Hallam University) um hvort ég geti sótt um eða hvort ég þurfi að taka einhverja kúrsa áður en ég get sótt um. Námið sem ég er að spá er Total Quality Management and Organisational Excellence og það er kennt í fjarnámi þannig við þurfum ekki að flytja til Bretlands
Best að fara að vinna..
Búin að fá svar frá skólanum. Ég þarf að taka Tofel prófið og það væri gott ef ég gæti sýnt fram á að ég hefði einhverja reynslu af störfum tengdum gæðastjórnun. Það er ekki laust í Tofel prófið fyrr en í maí og ég hef aðeins komið að því hérna í vinnunni að rýna og endurgera verkferla svo er að fara af stað gæðavinna, á að útbúa gæðahandbók og fara yfir verkferla ofl. Ég fæ að vera með í þeim hóp. Bryndís (minn næsti yfirmaður) ætlar að skrifa upp á það fyrir mig að ég hafi og muni taka þátt í þessu.
Núna er ég bara að bíða eftir bækling og umsóknareyðublöðunum frá skólanum, svo er planið að skella sér í Tofel og sækja síðan um.