Í loftinu

Það er svo gaman að spjalla við hana Andreu, við vorum að spjalla saman í morgun á leiðinni í leikskólann. Umræðuefnið hennar var aðallega það að hún vill vera systir með mikið hár, svo hún geti kennt Heklu. Hún taldi líka upp allar stelpurnar og kennarana sem eru “systir”.  Þegar hún fékk staðfestingu á því að hún yrði örugglega systir einhvern daginn þá var hún sátt :)

Ég er búin að fá bæklinginn frá Sheffield Hallam University um námið sem mig langar í. Ég ætla að skella mér í TOFEl prófið í maí og sækja svo um í skólanum. Ég er búin að tala við þau hérna í vinnunni og er bara tekið vel í þetta. Búið að gefa vilyrði fyrir því að ég fái að hliðra aðeins til í vinnunni ef þess þarf og svoleiðis, þannig að það er alveg frábært. En þetta er sem sagt mastersnám í Total quality management and oraganisational excellence og er það kennt í fjarnámi.

Það styttist í kosningarnar um álverið, ég vona svo sannarlega að hafnfirðingar hugsi um framtíðina og kjósi nei við þessari stækkun.

This entry was posted in Fréttir and tagged . Bookmark the permalink.

Comments are closed.