Barcelona

jæja best að gefa sér tíma í að segja frá ferðinni. Það var nú bara ágætlega gaman :) Við lendum í Girona sem er einhverja 45 km fyrir utan Barcelona og fórum þar upp í rútur sem keyrðu okkur á hótelið, en við gistum á Hótel Hilton. Rútuferðin var eins og flestar rútuferðir, maður spjallaði og skoðaði það sem birtist manni á leiðinni. Ótrúlegt hvernig þeir byggja þarna. Mjög mikið upp í hlíðum og sumt leit út fyrir að vera mjög illa byggt og ekkert skipulag virtist vera á staðsetningu húsanna. Við vorum komin á hótelið seinni partinn og kíktum aðeins á verslunarmiðstöðina sem var beint fyrir utan hótelið. Við vorum nú samt ekki í neinu verslunarstuði og röltum bara þarna um. Hefðum líklega átt að nýta tímann, en þetta var fínt hefðum þá bara eytt meiri pening. Um kvöldið fórum við að borða á Argentísku veitingahúsi sem að Hótelið mælti með staðurinn heitir Patagonia. Steikin var ótrúlega góð!!! Við fengum okkur flest lomo sem er nautafillet. Ég hef aldrei fengið eins góða nautasteik, það var bara borið fram með steikninni bökuð kartafla og svo var smá gróft salt sett ofan á kjötið. Það var hrein unun að borða þarna. Ef þið farið til Barcelona þá verðið þið að prófa þennan stað. Hérna er google kort af staðnum. Eftir máltíðina þá röltuðum við niður rúmbluna og drukkum í okkur mannlífið ásamt veigum. Við vorum nú samt ekki lengi og vorum komin upp á hótel um tvöleytið.

Við notuðum laugardaginn til að skoða borgina, en um 10 var skipulögð 2ja tíma rútuferð um borgina. Það var mjög gaman í henni maður fékk svona að sjá sýnishorn af því sem er hægt að skoða þarna. Það gerði greinilega mikið fyrir borgina að halda ólympíuleikana 92, hún var greinilega tekin í gegn og þau mannvirki sem voru byggð fyrir leikana hafa nýst borginni vel síðan. En fyrsta stoppið okkar í ferðinni var La Sagrada Familía, kirkja sem Gaudi byrjaði á 1882 og er henni enn ólokið. Við stoppuðum þar bara rétt aðeins til að taka myndir og svo var ferðinni haldið áfram. Við fengum að sjá tvö önnur hús sem Gaudi byggði, Casa Mila og Casa Batló og þau voru mjög flott. Við stoppuðum líka upp á fjalli þar sem borgarbúar fara um helgar til að njóta náttúrunnar. Ferðinni lauk svo á rúmblunni. Við fórum þá með Óla og Lilju beint í La Sagrada Familía og biðum þar í eina klst og 40 mín. eftir því að komast upp í turnana. En það var farið upp í lyftu og svo var gengið niður. Þetta var alveg magnað. Kirkjan er hreint út sagt ótrúlegt listaverk!! Við tókum flestar myndirnar í allri ferðinni þar. Þegar við komum niður var komin rigning þannig við hlupum inn á Pizza Hut og fengum okkur pítsu. Eftir það þá var hætt að rigna og við Gísli fórum á rúmbluna til að versla. Mig vantaði skó fyrir galadinnerinn, við fundum fína skóbúð og skóuðum fjölskylduna upp. Kíktum í nokkrar búðir og ég fann mér gallabuxur og bol en ekkert mikið annað. Gísli var að leita sér að buxum og jakka en fann ekki neitt. Við fórum síðan í verslunarmiðstöðina fyrir utan hótelið og versluðum þar á mettíma kjól og peysu á Andreu. Drifum okkur svo upp á hótelherbergi að sjæna okkur til fyrir matinn, vorum orðin ansi sein. Galadinnerinn var ok, maturinn var lala, forrétturinn og eftirrétturinn var það eina sem var gott. Það voru alveg ágæt skemmtiatriði það komu 2 senjorítur að dansa, en það var ekkert pláss þarna fyrir aðra að dansa og við fórum fljótlega upp á herbergi til Óla og Lilju ásamt Kalla, Öldu og Bo hollywood. Þar sátum við og spjölluðum og skáluðum í veigum aðeins frameftir. Síðan var farið að checka sig út af hótelinu til að losna við 560 manna biðröð um morguninn og svo var skriðið í háttinn. Sunnudagurinn fór allur í ferðalagið til baka. :) Við bættum upp verslunarleysið í fríhöfninni og versluðum smá dót fyrir Andreu og minjagripi.

Það hefði verið gaman að geta verið lengur og þá hefði maður farið í Gaudi garðinn og skoðað söfnin. Það er ótrúlega mikið þarna til að skoða, maður verður greinilega að fara aftur :)

This entry was posted in Fréttir and tagged , , . Bookmark the permalink.

Comments are closed.