ekkert hefur gerst í soldinn tíma..

jæja það hefur ekki verið mikið að gerast hérna inni í nokkra daga. En hellingur að gerast hjá manni.

Síðustu tvær vikurnar í apríl var ég sama sem ekkert heima, vinna myrkranna á milli. Það þurfti að klára ársuppgjörið fyrir borgina. Gísli algjör perla að sjá um heimilið á meðan. Við Andrea tókum okkur svo frí á mánudaginn var og fórum í verslunarleiðangur. Andrea fékk að versla sér tvennar bækur og fór síðan í klippingu. Hún er rosa fín komin með topp og alles.  Hún er reyndar komin með leiðinda hóstann sinn aftur og er byrjuð á pústinu. En ætti að vera orðin góð eftir 3 vikur. Á mánudeginum var líka áritunin á ársreikningnum, þannig ég fór upp í ráðhús kl 5 til að vera viðstödd það. Ótrúlegur léttir að það sé búið að árita hann. Nú á bara eftir að ræða hann í borgarstjórn og birta.

Um næstu helgi er alveg hellingur að gerast. Við erum að fara með Andreu í sveitarferð með leikskólanum á laugardaginn, á sunnudaginn er Gísli að fara til Seattle á námskeið og ég er að fara í brúðkaup.  Alltaf nóg að gera.

This entry was posted in Fréttir and tagged , . Bookmark the permalink.

Comments are closed.