Hollywood walk of fame

Gísli keypti rosa góðar verkjatöflur í morgun sem virkuðu ofboðslega vel. Við ákváðum að skreppa til Los Angeles og reyna að fá miða til að vera gestir hjá Jay Leno. Við vorum komin til NBC um hádegi og kom þá í ljós að miðarnir fóru allir á 10 mín. En það var byrjað að útbýta miðum kl 8 í morgun. Þannig við kíktum á Hollywood walk of fame sem var ofboðslega gaman :) Við röltuðum síðan upp og niður Hollywood blv og versluðum pínulítið. Kíktum á Hollywood skiltið eins og sannir túristar. Við enduðum síðan daginn/kvöldið með því að kíkja í bíó á Ocean´s 13. Furðulegt en satt þá klöppuðu heimamenn mjög mikið í bíóinu.

DSC00630

This entry was posted in Fréttir and tagged . Bookmark the permalink.

Comments are closed.