Í gær var ég hressari, alla vega hitalaus, maginn er enn að stríða mér. Við kíktum í smá verslunarleiðangur og fórum svo á Long Beach. Þar sáum við Queen Mary og veitingastaðinn Bubba Gump Shrimp Co. Það var aðeins of mikið af fólki þar þannig við gátum ekki snætt þar. Það var mjög gaman að rölta þarna og margt að skoða. Gísli setti inn myndir í gær.

Í dag er planið að byrja daginn á að kíkja í Down Town Disney.

21:45 – Hérna koma myndir dagsins.
Cali3 002
Cali2 009
Cali2 010