Mánudagurinn
Gísli byrjaði á námskeiðinu í gær. Ég rölti því í verslunar miðstöðina og verslaði mér föt. Ætlaði að kaupa crocs skóna á krakkana en þá voru þeir ekki til nógu litlir og í of fáum litum. En í dag þegar Gísli er búin á námskeiðinu þá erum við að fara í einhverja aðra verslunarmiðstöð og ætla ég að kíkja eftir skónum þar. Við erum búin að kaupa þá tvö hluti sem Andrea bað okkur um að kaupa, hún var ekki að biðja um mikið skvísan, liti og rauða spöng með slaufu. Ég missti mig nú samt pínu í Disney búðinni og verslaði soldið hefði samt léttilega getað verslað mun meira
Í gærkvöldi fórum við á Outback að borða, það var ofboðslega gott sérstaklega eftirrétturinn… namm ![]()

Í dag er planið mitt að njóta sólarinnar fyrir framan sundlaugina á meðan Gísli er á námskeiðinu.
p.s Til hamingju með afmælið Aisté!!!!
| Print article | This entry was posted by gislih on June 12, 2007 at 15:46, and is filed under Fréttir. Follow any responses to this post through RSS 2.0. Both comments and pings are currently closed. |
Comments are closed.
skilaboð