“Fashion Island” and the famous people

Jæja þá er þriðjudagurinn liðinn og við búin að versla okkur nýja myndavél. Já við keyptum Canon Digital Rebel Xti (400D) plús nokkra aukahluti. Þið sjáið eflaust myndir á morgun úr vélinni !!!

En aðal spurninginn er hvað eiga þessar tvær persónur sameiginlegt ?

Whitneygreenday

…nú auðvitað að hafa rekist á Gísla og Guðrúnu í “mall-inu” Guðrún var fljót að skjóta á það að söngvarinn úr Green Day væri lítill.

(p.s Whitney Huston virtist vera edrú )

Við kláruðum svo verslunarleiðangurinn á því að fá okkur kínverskan mat, við vorum bæði sammála að þetta væri með þeim betri sem við höfum fengið.

Svo er plannið að reyna að fara á “Medieval Times” á morgun og borða eins og Jim Carrey gerði í Cable Guy …

This entry was posted in Fréttir and tagged , . Bookmark the permalink.

6 Responses to “Fashion Island” and the famous people

  1. Esther says:

    Þið báðuð náttúrulega mum eiginhandaráritun er þaggi?;)

  2. amma efstuhlið says:

    hæ hæ…

    ég hefði beðið hana að singja…Andrea er alveg rosalega góð… hún er tvisvar búin að spyrja um ykkur….hún er búin að hjálpa ömmu að slá og hreinsa garðinn og blása sápukúlur og ýmislegt annað alltaf nóg að gera hjá ömmu. Ég heyri að þið farið aðeins í búðir :) eru töskurnar alveg að verða fullar….. ef þú Gísli kaupir vans skóg á þig þá kannski kaupir þú handa Antoni… sama númer og þú þ.e. nr. 11 getur það ekki passað…? Andrea biður að heilsa og allir hinir í Efstuhlíðinni…

  3. amma efstuhlið says:

    hæ hæ ….

    syngja…. aðeins að laga….

  4. gisli h says:

    nei .. við erum svo góð :) heeh heimamen létu þau alveg vera þannig að við gerðum það líka ;)

    p.s hvernig væri að fara kíkja á vitastig.net dashboardið og approva comment sem við gerðum :)

  5. gisli h says:

    ég redda því mamma

  6. Esther says:

    eehmm ég er búin að því:) ég bara skildi ekkert í því að engin kommentaði hjá mér…já já bara ljóska.

    Annars væri ég til í að vera í USA og versla og versla…aahh