Medieval Times

já við erum búin að versla aðeins. Vorum frekar heppin í Macys, Gísli fékk gefins þokkalega stóra tösku með ilmvatnskaupunum sínum. Þannig við þurfum líklega ekki að fjárfesta í auka ferðatösku :)
En við kíktum á Medieval Times í kvöld og var það ótrúleg upplifun!!! Staðurinn tekur 1200 manns og við komum þarna kortér í show. Vorum það heppin að við fengum sæti og fengum mjög fín sæti, vorum næst fremst. Það voru sjö riddarar, sex af þeim sem börðust á mótinu sjá sjöundi var sá sem stjórnaði mótinu. Við studdum bláa riddarann, en salnum var s.s. skipt niður í sex hluta og átti hver riddari sína þegna.  Það var ágæt saga í kringum þetta kóngurinn var nýbúinn að vinna stríð þar sem hann missti bróður sinnn. Það kom svo í ljós að einn af riddurunum hafði svikið kónginn og drepið bróðir hans. Blái riddarinn okkar stóð sig ótrúlega vel. Hann reyndar særðist illa í fyrsta “slagnum” og skipaði prinsessan fyrir um að hann yrði fluttur í herbergi hennar og hlúð að honum þar. Síðan dóu riddararnir hver af fætur öðrum í hörku spennandi bardögum, þar til einungis var eftir svarti og hvíti riddarinn. Sjöundi riddarinn, sá sem stjórnaði mótinu, tók sig þá til og drap svarta og hvíta riddarann með því ljóstraði hann upp að hann væri svikarinn og hefði drepið bróður kóngsins. Kemur þá ekki blái riddarinn og bjargar deginum, hann ásamt 4 hestsveinum berst af krafti við svikarann og 4 skósveina hans. Auðvitað vinnur blái riddarinn!!! Salurinn tók mjög mikið þátt í bardögunum með hrópum, köllum og púun. Þetta var ótrúlega gaman. Salurinn kvað upp dóminn yfir svikaranum sem var líflát og þá kom böðullinn sem sló hann með svipunni um leið og gengið var með hann út úr salnum.

Þetta var ótrúlegt show, mælum eindregið með því að fólk fari og kíki á þetta. Maturinn var fínn. Fengum súpu, hálfan kjúkling, brauð, rif og kartöflu. Auðvitað var síðan borðað með höndunum eins og gert var á miðöldum.

This entry was posted in Fréttir and tagged . Bookmark the permalink.

2 Responses to Medieval Times

  1. amma efstuhlið says:

    hæ hæ…

    glæsilegt, þetta hlýtur að hafa verið fjör… já gengur ykkur ágætlega að versla… það er nú gott… ert þú búin að finna Victoriu secret…? ef þú ferð þangað þá væri ég mjög glöð ef þú sérð spa vöruna þetta ljós blágræna.. þá langar mig í body kremið og body lotion.. ef það kemmst í töskurnar.. frá okkur er allt gott að frétta, amma gamla komin með strepptakokka í hálsin en er komin á lyf…Andrea mjög hress…. hún ætlar með okkur í sveitina í dag að planta trjám…jæja er að fara að kaupa tré og svo að sækja Andreu kl.3. heyrumst á morgun….

    kveðja
    Andrea og hinir í Efstuhlíðinni…

  2. gisli h says:

    já það er lítil victoria secret hérna við hliðiná okkur. ég skal fara í dag og kaupa þetta fyrir þig.
    Það verður gaman hjá skvísunni í sveitinni.. þú knúsar hana frá okkkur :)

    Annars er planið í dag að fara með Boeing grúbbunni á Huntington Beach og svo í mat í kvöld.