Jæja mamma, hérna er svo Maríulaxinn sem þú baðst um 5 punda hængur
Það er svo sem ekki mikið hægt að segja meira en að ég lærði að kasta flugu og náði mér í skemmtilega reynslu í laxveiði ásamt því að kynnast öllum siðunum sem fylgja.
Norðurá var góð og allur aðbúnaður frábær…. ætti líka að vera það þegar stöngin kostar 180 þús per dag
hhehe endilega skoðið flicker síðuna til að sjá fleiri myndir.

jæja á nú að landa maríulaxinum…..
kveðja
amma í efstuhlíð
Glæsilegur…. ekki verra að fá að smakka hann namm namm..
þú tekur þig vel út í gallanum…..
kveðja
mamma…..
Flottur! Þú verður að veiða stærri fisk næst svo þú getir líka boðið mér í mat he he;)
Við fórum að Hítarvatni um helgina og veiddum nokkra titti. Það er stöngin bara aðeins ódýrari en í Norðurá 2500kall.
Setti myndir inn á barnaland.
Hehhe maður tekur sig vel út í veiðinni
svo er þetta líka bara helvíti skemmtilegt sport,, svona þegar maður veiðir eitthvað !
Ég sé að við verðum að kíkja í Hítarvatn og veiða nokkra fiska
flottar myndir á barnalandi !