Þá er maður orðinn 28 ára og bara tvö ár í þrítugt, tíminn líður

Dagurinn var bara mjög góður fyrir utan smá vinnupirring. En yfirmennirnir virðast vera ósköp óskipulagðir og bitnar það á starfsfólkinu. Aisté var búin að blása upp blöðrur og hengja upp inn á skrifstofu þegar ég mætti í vinnu. Síðan rétt fyrir hádegi kom mamma óvænt í heimsókn og færði mér blóm og kerti
Síðan í hádegismat fórum við Sigrún og Aisté á kaffi Óliver til að fá okkur súkkulaðiköku hún var voða góð en ekki eins góð og hún var áður. Ég hætti að vinna rétt eftir 3 og var komin heim hálf fimm. Var að erinderast, setti í gírinn og tók til alveg á milljón, sjænaði mig svo til og Gísli einnig. Við fórum svo að borða á Hafinu bláa. Það var svona lala matur, mælum alla vega ekki með staðnum. Farið frekar á sjávarkjallarann, sá staður er bara frábær. Eftir matinn fórum við heim og biðum eftir gestunum. Það var mjög gaman og ég vona að allir hafi skemmt sér jafnvel og ég ![]()
Ég fékk fullt af fallegum og góðum afmælisgjöfum. Gísli gaf mér 66 gráður norður dúnvesti og gsm síma, sony ericson k610i. Hann er rauður og flottur
Á sko eftir að nota hann mikið. Loksins get ég verið með flotta hringitóna og gert eitthvað annað en að hringja og senda sms
Andrea gaf mér kerti, þegar ég þakkaði henni fyrir kertið daginn eftir, þá var mín frekar mikið sár og fúl út í mömmu sína. Hún fór að hágráta og sagði pabba sínum að mamma hennar hefði verið að halda afmæli og ekki boðið henni. Hún gaf mér sko engan pakka. Ég þarf að bæta henni það upp og bjóða henni upp á köku og bíó fljótlega. Anna og Gulli gáfu mér sjálfshjálparbókina Happy Housewives in 10 east steps! Meðal skrefa er t.d. “stop whining” og “get back in the kitchen” það verður skemmtilegt að lesa þessa. Aldrei að vita nema maður hætti bara að vinna og gerist húsmóðir
Halldór, Ósk og Ásgeir gáfu mér svona körfu frá body shop með alls konar baðdóti í, alveg ekta ég
Aisté og Þorri gáfu mér rauðvínsflösku og stand undir hana. Hann er ótrúlega töff, er svona eins og máni í laginu. Jón og Beta gáfu mér rauðvínsflösku. Elísabet gaf mér 2 martini glös. Þau eru rosaflott og núna getum við skálað saman í Cosmo. Tengdaforeldar mínir og Anton gáfu mér hlekk á pandoru armbandið mitt, mánaðarsteinninn minn. Sigrún og Magnús gáfu mér það að þau borguðu bílastæðasektina sem ég fékk þegar við fórum að fá okkur köku á Kaffi Óliver, Sigrún ætlar að ramma sektina inn
Klara og Miles gáfu mér dvd Breakfest at Tiffany´s, það verður gaman að horfa á hana þar sem ég hef aldrei séð hana.
Ég vil þakka öllum aftur fyrir frábærar gjafir og að hafa eytt þessum skemmtilega degi með mér, hann var frábær í alla staði ![]()
Elsku Gunna innilega til hamingju með afmælið þitt, ég er svolítið sein að skrifa en betra er seint en aldrei.
Vonandi áttir þú góðan afmælisdag og skemmtir þér vel
Kveðja
Berglind