Viðburðarrík vika

Síðasta vika var mjög viðburðarík hjá okkur. Mér var boðin vinna hjá Askar Capital og sagði upp í kjölfarið. Bókhaldið reyndi að bjóða betur en eins og yfirmaðurinn sagði þá eru það ekki bara launin. Það er búið að vera mikill vinnupirringur hjá mér undanfarna mánuði og ýmislegt fleira sem hefur farið í skapið á mér. Frekar mikið skipulagsleysi og stjórnleysi á svæðinu. Jæja þannig ég sagði upp og þarf að byrja hjá Askar 1. nóvember, fer líklegast á morgun að skrifa undir ráðningarsamninginn og þá er þetta komið í höfn.

Ég hitti líka hina liðhlaupana úr bókhaldinu í síðustu viku, fórum á Ask og fengum okkur kvöldmat. Það var ótrúlega skemmtilegt að hitta skvísurnar aftur.

Á föstudeginum var síðan Orri kvaddur en hann er einnig hættur. Við kvöddum hann með stæl, plöstuðum bílinn hans :)

hpim0684.jpg

Hann tók því nú bara vel drengurinn hehe síðan fórum við að borða á Reykjavík Pizza Company og ég verð að segja að ég var ekki inpressed með staðinn. Pizzan var bragðlaus, eina bragðið sem var af henni var af speltinu í botninum. Þannig ég fer ekki aftur þangað.

IMG_2795.JPG

Helgin var síðan mjög fín. kíktum á menningarnótt og sáum brúðusýningu, Andy Warhol og auðvitað Ástrósu að spila. Gísli setti inn myndir af henni á flickr.

This entry was posted in Fréttir and tagged . Bookmark the permalink.

3 Responses to Viðburðarrík vika

  1. amma efstuhlið says:

    hæ hæ

    til hamingju með nýju vinnuna þetta verður spennandi….
    kv tengdó..

  2. Guðrún says:

    takk :)

    er að fara að skrifa undir á eftir!! :)

  3. Berglind says:

    Hæ hæ

    Innilega til hamingju með nýju vinnuna, þér á eftir að ganga vel og brillera :)

    Kveðja
    Berglind