Archive for August, 2007
útilega
Aug 2nd
Jæja þá er komið að annarri útilegu sumarsins. Við erum búin að græja okkur rosalega vel, keyptum okkur tjald í gær . Það verður vonandi þrælfínt. Mamma og pabbi sendu okkur síðan í morgun ferðakolagrill og helluborð með 2 gashellum. Tengdó lánaði okkur svefnpoka og gashitara, Guðrún frænka lánaði okkur borð sem er fallega gult
Við fórum svo í dag að versla regnstakk á Gísla í leiðinni verslaði hann afmælisgjöfina mína
hún er rosa flott. Það er svona hvítt dúnvesti frá 66 gráðum norður og hvítur sjóhattur. Ég verð sko aldeilis fín.
Í kvöld verður síðan ákveðið hvert skal halda og ætlum við að notast við snildarsíðu sem Halldór og Ósk bentu okkur á, belgingur heitir hún. Þar er hægt að sjá hvernig hiti, rok og rigning ferðast yfir landið. Við ætlum að leggja í hann í fyrramálið, Halldór og Ósk leggja svo af stað seinni partinn og hitta okkur.
Svo fáið þið bara fréttir eftir útileguna
Góða skemmtun um verslunarmannahelgina!!!!!!


skilaboð