Archive for August, 2007
,,Elsku mamma..
Aug 13th
ég vil heita Svandís”.
Viltu ekki heita Andrea Ruth?
,, Nei ég vil heita Svandís, eins og Halldór og Ósk Svandís”
En mamma og pabbi viltu að þú hétir Andrea Ruth.
,, En ég er búin að nota það svo lengi, ég vil heita eitthvað annað.”
Mamma er búin að heita Guðrún síðan hún var lítil.
,, En ég vil heita annað þegar ég verð stór systir”
Við skulum ræða það þegar þú verður stór systir.
,, já”
Afmælisdagurinn
Aug 12th
Þá er maður orðinn 28 ára og bara tvö ár í þrítugt, tíminn líður

Dagurinn var bara mjög góður fyrir utan smá vinnupirring. En yfirmennirnir virðast vera ósköp óskipulagðir og bitnar það á starfsfólkinu. Aisté var búin að blása upp blöðrur og hengja upp inn á skrifstofu þegar ég mætti í vinnu. Síðan rétt fyrir hádegi kom mamma óvænt í heimsókn og færði mér blóm og kerti
Síðan í hádegismat fórum við Sigrún og Aisté á kaffi Óliver til að fá okkur súkkulaðiköku hún var voða góð en ekki eins góð og hún var áður. Ég hætti að vinna rétt eftir 3 og var komin heim hálf fimm. Var að erinderast, setti í gírinn og tók til alveg á milljón, sjænaði mig svo til og Gísli einnig. Við fórum svo að borða á Hafinu bláa. Það var svona lala matur, mælum alla vega ekki með staðnum. Farið frekar á sjávarkjallarann, sá staður er bara frábær. Eftir matinn fórum við heim og biðum eftir gestunum. Það var mjög gaman og ég vona að allir hafi skemmt sér jafnvel og ég ![]()
More >
skilaboð