Andrea Ruth á alveg yndisleg komment stundum. Hún kom heim á sunnudagskvöldið frá afa sínum og ömmu. Hún vildi fara í mömmó. Hún spurði mig hvort ég vildi vera stóra systirin og hún væri þá mamman, ég samþykkti það. Gísli spurði hana þá hvað hann ætti að vera og hún svaraði að bragði að hann væri pabbinn.
Gísli spurði hana þá hvað gerir mamman. Andrea svaraði ,, Mamma stjórnar öllu.” Ég var ofboðslega ánægð með þessa niðurstöðu hennar
svo hélt hún áfram ,, Mamma klæðir sig í fötin, eldar matinn, setur í vaskinn.. ” svo kom smá hik þá sagði Gísli ,, og þurkar af?” hún samþykkti það. Ég spurði hana þá hvað pabbinn gerir.. hún hugsaði sig um í smá stund og sagði ,, Hann klæðir sig í fötin”
ég spurði hana þá hvað hann gerði fleira og eftir ögn meiri umhugsunar tíma þá kom svarið ,, Ég veit það ekki”.
Andrea var síðan að brasa við að elda matinn í litla eldhúsinu sínu, það átti að vera fiskur og egg í matinn, en hún gafst upp á endanum kom til mín og sagði ,, Mamma, vilt þú vera mamman, því það er svo erfitt?”
Æjj hún er svo mikil dúlla. Það er þá allavega gott mál að vita til þess að Gísli fer í fötin á morgnana
thíhíhí
hvernig er þetta eiginlega með verkaskiptinguna…??
er það eitthvað að klikka..:)
kveðja
mamma ( tengdó )
já það væri nú slæmt ef hann kæmist ekki í fötin á morgnanna
hehe
Já ég er nú sammála mömmu hans Gísla að það þurfi nú eitthvað að laga verkaskiptinguna á heimilinu
og nú komst upp um hann Gísla, en ég veit svo sem að hann á sína góðu daga samkvæmt mjög góðum heimildarmanni/konu
Börnin segja nefnilega alltaf sannleikann
já hann getur alveg gert þetta og hann hjálpar alveg til.
já hann getur þetta alveg… allavega var hann góður í þessu áður hann flutti að heiman…. þetta hlýtur að rifjast upp….
kveðja
Mamma…..
ég ætla ekki að voga mér inn í þessa umræðu, verð tekin í gegn svipað og í afmælinu hennar guðrúnar.
Gísli benti mér á það í morgun að ég gleymdi að setja inn eina setningu frá Andreu. Hún endaði víst á því að segja að “Mömmur eiga að gera allt”.