Andrea eldar

Andrea var að elda kvöldmat í gær handa börnunum sínum. Ég var víst stóra systirin sem talaði bara ensku og Gísli var litla barnið. Hún lagði matarstellið sitt voða fínt á sófaborðið og mallaði mat í litla eldhúsinu sínu, síðan lét hún vita að maturinn væri tilbúinn. Ég byrjaði að skammta mér á diskinn. Þá segir hún ,, Veistu hvað er í matinn?” og ég segji ,, já kjúklingur” því hún var með plast kjúklinginn í pottinum. Hún leiðréttir þessi mistök mín og segir:

,, Nei það er lirfa”.

This entry was posted in Fréttir and tagged . Bookmark the permalink.

Comments are closed.