Andrea í aðgerð

Við fórum í morgun að hitta Tomas Carlsted og hittum einnig, Guðmund Gunnlaugsson en hann er handaskurðlæknir og Pétur Lúðvígs. Tomas skoðaði hendina hennar og spjallaði aðeins við okkur. Hann ætlar að gera aðgerð á Andreu í fyrramálið með honum í aðgerðinni verður Guðmundur Gunnlaugsson. Það á að gera sinaflutning á tveimur sinum. Önnur fer í úlnliðinn og hin í þumalinn. Þetta á að auka styrk og hreyfigetu í hendinni. Aðgerðin verður gerð á Borgarspítalanum í fyrramálið, síðan seinni partinn á morgun verður Andrea flutt á Barnaspítalann og mun vera þar alla vega eina nótt. Andrea verður síðan í gifsi í 4 vikur.

DSC03780.JPG

This entry was posted in Fréttir and tagged , . Bookmark the permalink.

2 Responses to Andrea í aðgerð

  1. Anton litli bróðir says:

    Bið að heylsa frænku. Gangi allt vel fyrir sig

  2. Anna amma says:

    Hæ hæ….bara sætust….og duglegust…:)

    kveðja
    Anna amma og afi Valdi