Andrea kom heim af spítalanum í gær, svona gekk þetta fyrir sig. Hún fór í aðgerðina kl 11 á föstudagsmorgni, við vorum því mætt upp á barnadeild Borgarspítalans rétt eftir kl 9. Pabbi hennar var með henni í svæfingunni og gekk svæfingin mjög vel. Andrea stóð sig mjög vel og streittist ekkert á móti. Skoðaði bara vel í kringum sig og lá alveg grafkyrr. Rétt eftir kl 12 var hún komin á vöknun og þá fór mamma til hennar. Hún svaf alveg til kl 2 en þá var hún vakin því það átti að fara að flytja hana niður. Vöknunin gekk vel, engin uppköst né ógleði. Var hún síðan flutt niður á barnadeild eftir langa bið.
Andreu leið vel en var frekar dösuð. Hún borðaði tvær brauðsneiðar og einn banana seinni partinn og drakk hálfan eplasvala. Þegar hún var síðan búin að pissa þá vorum við flutt á Barnaspítala hringsins. Þannig að skvísan fékk að fara í sjúkrabíl, hún var soldið hissa í bílnum og skoðaði allt vel í kringum sig. Þegar við vorum síðan komin upp á stofu þá sagði hún að henni hefði fundist ferðin með sjúkrabílnum ansi spennandi. Andrea var hress, borðaði smá kvöldmat og drakk. Hún kvartaði ekki undan neinum verkjum og leið bara ágætlega. Hún svaf vel um nóttina, þegar hún svaf. Við deildum stofu með annarri lítilli stelpu sem leið ekki vel, greyið var með verki og grét því frekar mikið um miðja nótt. Við mæðgur vöknuðum því og vorum vakandi í einhverja tvö tíma, frá hálf tvö til hálf fjögur, vorum síðan vaktar aftur rétt fyrir kl 7. En þá var litla stelpan aftur komin með verki.
Við kítkum aðeins fram og skoðuðum dótið, svona aðeins til að gefa hinni fjölskyldunni næði. Andrea var mjög hrifin af öllum bókunum og dótinu sem þarna var. Hún borðaði morgunmatinn sinn þarna frammi og borðaði vel af honum.
Upp úr tólf kom Guðmundur Gunnlaugsson, að kíkja á okkur. Aðgerðin gekk mjög vel, þeir gátu þó ekki farið þá leið sem þeir ætluðu sér í upphafi, að taka sin úr úlnliðnum, þar sem að Andrea var ekki með þá sin. En það er mjög algengt, sumir eru með hana aðrir ekki. Fingurnir vísifingri til litla fingurs eru með tvær beygjusinar, þannig að þeir tóku sin frá löngutöng og litla fingri. Færðu þær yfir, önnur lyftir sem sagt upp úlnliðnum og hin fór í þumalinn. Hann sagði að allt hefði gengið vel. Andrea verður í gifsi í 4 vikur og á að koma í endurkomu eftir 2 vikur. Síðan eftir þessar fjórar vikur þá verður skoðað með iðjuþjálfunina, hann sagði að það lægi ekkert á því.

Hún Andrea er svo ótrúlega dugleg…Það er gott að þetta er búið og gekk vel….:)
kv Anna amma
Takk Mamma
Jepps hún Andrea hefur staðið sig eins og hetja !
Rosalega er gott að heyra hvað allt hefur gengið vel
Rosalega ertu búin að vera dugleg prinsessan hennar ömmu og afa. við sendum koss