Gleðilegt nýtt ár :)

Við viljum byrja á því að þakka öllum ofboðslega vel fyrir okkur, bæði gjafi og jólakveðjur :)

Við höfðum það mjög gott yfir jólin og slöppuðum vel af. Andrea var mjög svo róleg yfir jólunum, var reyndar alveg tilbúin kl 7:30 um morguninn að fara í fínu fötin og fara til ömmu og afa, við foreldrarnir vorum ekki alveg til í það. En biðin gekk vel og Andrea sat allan dagin og perlaði á meðan hún hlustaði á barnaefnið.

Það var ofboðslega gaman að sjá það í fréttunum að frændi minn og fjölskylda hans fengu óvæntan jólaglaðning. Við viljum óska þeim til hamingju með það og óskum þeim eins og öllum öðrum gleðilegs nýs árs :)

IMG_1145.JPG

This entry was posted in Fréttir and tagged , , , . Bookmark the permalink.

One Response to Gleðilegt nýtt ár :)

  1. amma og afi efstuhlið says:

    Sömuleiðis elskurnar… takk fyrir okkur :) þetta eru nú meiri krúttin Andrea Ruth og bangsin sem talar :) :)

    kv amma í Efstuhlíð