Jæja þá er nýtt ár komið og heilmikið búið að gera á þessum tveim vikum sem eru liðnar af því. Við fórum til eyja 4. janúar og vægast sagt var ferðin þangað ekki skemmtileg. Það var frekar leiðinlegt veður og mikill veltingur á bátnum. Laugardagurinn heppnaðist þó mjög vel og var veðrið frábært sem leiddi til þess að þrettándagleðin sló vel í gegn. Við skemmtum okkur mjög vel, Andrea heilsaði öllum jólasveinunum, nokkrum tröllum en þorði ekki að heilsa Grýlu. Enda kerlingin ansi ófrýnileg. Á sunnudagsmorgni var síðan haldið heim á leið, þá var reyndar hinn raunverulegi þrettándi og komum við beint í afmælisveislu í Önnu ömmu.

IMG_1692.JPG

Annars fjölgaði í fjölskyldunni um helgina. Gísli og Andrea fóru í Dýraríkið á meðan ég var að vinna og versluðu eitt stykki gára. Andrea valdi grænan gára og skírði hana Erlu. Þegar þau svo sóttu mig í vinnuna þá bað Andrea mig um að loka augunum og mátti ég ekki opna þau fyrr en við værum komin heim. Ég samdi við hana og fékk að loka augunum þegar heim var komið. Skvísan leiddi mig inn í stofu og taldi upp á 10 og við blasti þessi glæsilegi páfagaukur. Við höldum samt að hún Erla sé karlkyns en það kemur kannski betur í ljós síðar. Andrea var ekki kát þegar við sögðum henni frá grunsemdum okkar varðandi kynið, hún vill að Erla sé stelpa.

IMG_1772.JPG

Meira sem skeði um helgina, var að Andrea byrjaði í ballett. Fyrsti tíminn gekk mjög vel og henni fannst mjög gaman. Tvær vinkonur hennar eu með henni í tímunum þannig þetta verður mjög skemmtilegt námskeið fyrir hana.