Facebook páskar :)
Þá er páskavikan að verða búin. Við erum búin að hafa það mjög gott. Mikið um góðan mat og auðvitað svo páskaeggin. Andrea sá um að leita að öllum páskaeggjunum og var hún ekki lengi að því. Líklega vegna þess að hún var búin að segja pabba sínum fyrirfram hvar átti að fela hvert egg. Skvísan fékk málshátt við hæfi eða “sá spyr sem ekki veit” og hún spyr, spyr og spyr svo aðeins meira. Stundum dettur manni nú bara rassálfarnir í Ronju ræningjadóttir í hug þegar Andrea byrjar. En það er bara gaman af þessu. Við Gísli fengum málsháttinn “Allir eru vinir meðan vel gengur”.
Anna og Gulli skírðu litla stubb um helgina. Emilía var búin að standa sig mjög vel í að þaga yfir nafninu. Hún stóð sig síðan mjög vel í skírninni var ljósberi og sagði nafnið. En stubbur er víst ekki stubbur lengur heldur heitir hann Benedikt Einar
Við enduruppgötvuðum síðan Facebook um páskana. Maður getur nú alveg gleymt sér þarna inni, við fundum út hinar ýmsu leiðir til að minnka spamið sem síðan sendir manni og hvernig hægt er að stjórna hvaða hópar fái upplýsingarnar um mann. Gísli er nú samt mest ánægður með það hvernig facebook kemur út í iphoninum.
| Print article | This entry was posted by gislih on March 24, 2008 at 14:10, and is filed under Fréttir. Follow any responses to this post through RSS 2.0. Both comments and pings are currently closed. |
Comments are closed.
skilaboð