Línvellir 23
Jæja þá erum við búin að velja okkur lóð. Þetta byrjaði voða vel nokkrir sem að hættu við eða mættu ekki t.d. fólkið sem var með nr. 1 og nr 7. Mér fannst frekar skrýtið hve margir það voru sem að hættu við. Þegar kom að okkur að velja (vorum nr. 81) þá voru 11 búnir að hætta við, en þetta fór nokkurn vegin eins og okkur hafði grunað að þetta myndi fara. Héldum reyndar að lóðirnar vinstra megin (nær álverinu) myndu klárast fyrr en það voru þó nokkrar eftir þegar kom að okkur. En við ákváðum að vera á svæðinu sem við vorum hvað spenntust fyrir upphaflega. En við völdum lóðina Línvellir 23 (efri rauði ferningurinn). Lóðin er 645 fermetrar og erum við ofboðslega ánægð með hana
Guðrún Þóra og Gísli völdu Lerkivelli 5 (neðri rauði ferningurinn) þannig það verður ekki langt á milli okkar.
Næsta skref er síðan að fara í að fá teiknara til að teikna handa okkur draumahúsið
“UPDATE” Svæðið með loftmynd ( Stór file !! )
| Print article | This entry was posted by gislih on March 27, 2008 at 22:06, and is filed under Fréttir. Follow any responses to this post through RSS 2.0. Both comments and pings are currently closed. |
Comments are closed.


about 2 years ago
Til hamingju með lóðina. Virðist vera voða fín staðsetning
about 2 years ago
Takk
Við erum mjög ánægð með þetta. Stutt í Ástjörn og stutt á grænt svæði. Bara frábært
about 2 years ago
Hæ krakkar og til hamingju aftur. Þetta verður snilld hjá okkur og stutt að skokka yfir til að fá lánaðan hamar;)
kv. Gísli og Gunna (hin)
about 2 years ago
Til hamingju með þetta
Það verður gaman að fá ykkur í hverfið