Þá erum við búin að vera í Danmörku í 5 daga og margt búið að gera, það eru komnar inn myndir frá fyrstu dögunum.

Flugið gekk alveg prýðilega vel. Lentum í smá veseni með bílaleigubílinn, fengum ekki bílinn sem við höfðum pantað og var ljóst að það kæmust ekki þrír fullorðnir og tvö börn í hann ásamt töskum. Eftir smá spjall við Hertz þá fengum við örlítið stærri bíl. Ferðin frá Billund flugvelli og í sumarhúsið var þvílíkt ævintýr. Notuðumst við Neverlost GPS tæki sem við erum búin að endurskýra sem Alwayslost, en tækið tók okkur í gegnum ÖLL litlu þorpin sem eru á leiðinni frá Billund til Nr. Nepel.  Við vorum orðin ansi pirruð og vorum því mjög ánægð þegar við loksins komumst í hús.

Á sunnudeginum fórum við í mjög svo flotta og dýra sundlaug, þar voru slatti af rennibrautum og mikið um að vera. Andrea var mjög huguð og fannst geðveikt gaman að fara með pabba sínum í stærstu vatnsrennibrautina. Stúlkan er upprennandi adrenalínafíkill :)

Á mánudeginum kíktum við til Esbjerg og röltuðum þar um göngugötuna. Versluðum auðvitað örlítið í HM.

Þriðjudagurinn var svo stóri dagurinn sem stelpurnar voru búnar að bíða hvað spenntastar eftir. En þá fórum við í Legoland. Það var ekkert smá flott, allt saman og ótrúlegt hvað er hægt að búa til úr legokubbum. Við fórum síðan í tækin og Andrea fór í sinn fyrsta rússibana. Henni fannst það geðveikt!! Hún var aftur á móti frekar ósátt með að mega ekki fara með pabba sínum í Xtreme rússibanann og í vatnsrússíbanann, en hún var ekki nógu stór. Hún fékk þó að fara í slatta af tækjum og var mjög kát með þau öll nema litlu bílana sem keyrðu um á hraða snigilsins.

Á miðvikudaginn (í gær) þá fórum við á ströndina. Það rættist vel úr veðrinu og var ekki búist við því þegar lagt var af stað að hægt væri að fara í sjóinn og því voru engin sundföt tekin með. Andrea var því bara á nærunum og bolnum í sjónum.

Í dag (fimmtudagur) þá fórum við í Lövenpark, Givskud Zoo, og var það ofboðslega gaman. þetta er frekar stór dýragarður og skiptist maður á að ganga um og skoða dýrin og keyra um. Það var skemmtilegt að sjá dýr eins og gírafa, antilópur, ljón, buffalóa, górillu og fleiri í svona miklu návígi. Gírafarnir voru bara alveg upp við bílana maður hefði getað snert þá. Við misstum af þegar ljónunum var gefið að borða en sáum þó eina ljónynjuna gæða sér á antilópu. Í garðinum var einnig risastór leiksvæði fyrir krakkana, með þrautabrautum og trampólínum. Það er alveg óhætt að segja að allir hafi skemmt sér mjög vel í dag og er alveg nauðsynlegt að fara í þennan dýragarð þegar fólk er á ferðinni hérna á Jótlandi.

Á morgun er ekki alveg ráðið hvað við gerum, veltur á veðrinu. En það er búið að rætast mjög mikið úr því. Fyrstu tvö dagana var soldill vindur og stuttir rigningarskúrar en síðan hefur verið alveg í kringum 23 stiga hiti.