Í gær var veðrið ekki eins og við höfðum vonað. Vorum að vonast til að komast á ströndina, en það var frekar kalt og blautt fram að hádegi. Við skruppum því til Herning og verslaði Andrea sér slatta af fötum í HM. Hún hefur þetta alveg í blóðinu, var þó mest hrifin af glingri, töskum og skóm.. sannur kvennmaður :) Þegar komið var aftur upp í hús, tók við pökkun og leikur hjá börnunum. En Gísli útbjó mjög vinsæla rólu í garðinum, sem samanstóð af reipi og trébút. Hann eyddi síðan alveg hellings tíma í að sveifla stelpunum í þessari rólu alla vikuna.

Í morgun skiluðum við húsinu og lögðum af stað til Köben. Ferðin gekk vel þrátt fyrir smá  bílveiki hjá Andreu, en til allra lukku þá vorum við nýkomin inn á McDonalds þegar hún kastaði upp. Þannig það var hægt að skola úr fötunum í vaskinum þar. Það sem eftir lifði af ferðinni gekk þó glimrandi vel og ekki varð skvísan meira veik.

Núna erum við upp á hótel herbergi og er Andrea að reyna að sofna, henni reynist það frekar erfitt þar sem hún er ekki von því að við erum inni hjá henni þegar hún er að sofna. Á morgun er síðan stefnan tekin á tívolíið og eru allir mjög spenntir fyrir því :)