Archive for August, 2008
Lítið kríli
Aug 21st
jæja þá er það stóra fréttin, alla vega sú stærsta í sumar
Það er lítið kríi á leiðinni í heiminn, áætlaður fæðingardagur er 27. febrúar 2009.
Hérna fyrir ofan eru myndir sem teknar voru á mánudaginn og var ég þá gengin 12 vikur og 3 daga.
Við sögðum síðan Andreu fréttirnar á þriðjudaginn og hún vissi ekki alveg hvernig hún átti að taka því, en eftir smá stund og spjall þá áttaði hún sig og varð ansi kát
fór að spurja mikið um litla barnið í maganum, hvort það væri í fötum, með sundgleraugu og hvernig það gæti andað osfrv. Allt mjög skemmtilegar spurningar
Hún er búin að skoða sónarmyndirnar alveg fram og til baka og er alveg jafn spennt yfir þessu og foreldrarnir.
Ágúst
Aug 21st
Við höfum nú ekki verið dugleg að skrifa inn fréttir mjög lengi. Veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja. Það er svo margt búið að vera að ske. Mikið af afmælum og svo auðvitað þjóðhátíðin. En já byrjum bara á henni…
við s.s. fórum á Þjóðhátíð, Gísli hefur aldrei farið og ég hef ekki farið síðan árið 2000. Við skemmtum okkur konunglega eins og sjá má af myndunum. Það er samt soldið mikið að taka heila helgi í þetta og væri ég alveg til í næst þegar við förum að taka bara sunnudaginn, hann er jú alltaf skemmtilegastur
Af afmælum í mánuðinum þá er alltaf nóg af afmælum, Hrafnkell varð 3ja ára, ég varð 29 ára, Elí frændi varð 29 ára og Esther verður 33 ára (eða segjir maður tuttugu og þréttán?).
Ég er að fara á ráðstefnu í danmörku síðustu helgina í ágúst á vegum Grant Thornton. Verður örugglega mjög svo gaman en ætla að reyna að losna við að taka þátt í fótboltamótinu. Hefur einhvern vegin alltaf tekist að fá boltann í andlitið eða magan þegar ég hef verið neydd til að spila fótbólta. Vil frekar vera í öruggri fjarlægð á áhorfendabekkjunum. .. og talandi um fótbolta, við fórum auðvitað á FH-Aston Villa. Það var rosalega gaman og alveg geðveikt að FH skildi skora!!
Ég ætla að geyma stærstu fréttina þar til í kvöld eða á morgun. Ætla að skella inn mynd með henni.




















skilaboð