,,Jóndi er skotinn í mér”

Var að aðstoða Andreu í háttinn í gærkvöldi og vorum við að ræða um ýmis málefni sem brunnu á henni. Aðallega um krakkana sem eru með henni á leikskólanum. Þá komu þessi snildarorð frá henni.

Andrea: “Jóndi er skotinn í mér”
Mamma: ” er það?”
Andrea “já og hann er líka skotinn í Nínu.”
Mamma: “Sagði hann ykkur það?”
Andrea: “nei, en hann er sko líka ástfanginn í okkur.”
Mamma: ” Í alvörunni, og eruð þið skotnar í honum?”
Andrea: “Nei, hann er alltaf í Star Wars og Superman.. og Batman.”
Mamma: “ok”
Andrea: “Ég hleyp bara til Arons og spyr hann hvort ég megi leika við hann og hann segir alltaf já.”
Mamma: ” Það er nú gott að hann vilji leika við þig.”
Andrea: ” já, ég segi honum að Jóndi sé skotinn í mér, þá segir Aron mér bara að hlaupa í burtu frá honum.”

This entry was posted in Fréttir. Bookmark the permalink.

2 Responses to ,,Jóndi er skotinn í mér”

  1. Elísabet Árný says:

    hehe

    þetta er algjör snilld

    já þetta byrjar aldeilis snemma

  2. Þessi börn eru svo miklir snillingar og greinilegt að hún Andrea er alveg með á hreinu hverjir séu skotnir í sér.
    Endalaust mikil dúlla

    Kveðja
    Berglind