Skvísan okkar hefur stundum ansi lítið hjarta. Hún vaknaði í nótt með tárin í augunum því hana dreymdi illa. Ég tók utan um hana og spurði hvort hún vildi segja mér frá draumnum, hún sagði að hana hefði dreymt að hún vildi fara í pils en hefði ekki mátt fara í pils. Þetta var fljótlagað með smá knúsi og klósettferð, eftir það var draumurinn gleymdur.