Archive for October, 2008

af okkur

jæja Andrea er að reyna á okkur foreldrana, gá hvað hún kemst langt.. minnir stundum á “gelgju”. Þessi hegðun er eiginlega bara svona allt í einu komin, spurning hvort þessi breyting hjá henni sé vegna þess að það er að koma lítil systir eða kannski er hún bara komin á fyrsta “gelgjuskeiðið”. Við reynum að taka á þessu við hana. Átti samt erfitt með mig í gærkvöldi.. svona eftir á, þegar ég fór aðeins að hugsa þetta. Þetta var nú bara frekar fyndið.

En hún fór til augnlæknisins í gær og er niðurstaðan núna sú að hún er enn með verri sjón á vinstra auganu heldur en því hægra. En það munar víst bara einni línu og því ekki þörf á að hún sé með leppinn. Það er víst notaður leppur þegar það munar tveim línum. Hún er með góða þrívíddarsjón sem er mjög gott þar sem maður þarf að hafa góða sjón á báðum augum til að sjá vel þrívíddarmyndir. Svo er mæting aftur í febrúar :)

Hún bíður spennt eftir litlu systur, er búin að láta okkur pabba sinn skrifa niður nöfn á lista. Þau eru nokkur góð og sum ekki svo góð. Hún samþykkti þó að við myndum ekki skíra litlu systur Pocahontas en vildi samt fá nafnið á listann. Hún vill líka ólm fara í búðir og kaupa bleyjur, diska, glös og pela handa systur sinni. Er búin að segja henni að það sé aðeins of snemmt í þannig innkaup og að hún fái nú pottþétt að koma með þegar ég fer að versla þessa hluti.

Síðasta laugardag fengum við að fylgjast með ballettímanum. það var mjög gaman henni hefur greinilega farið fram síða á síðustu önn. En það var greinilegt hvaða dans henni þótti leiðinlegastur, því þá fór hausinn út á hlið og tungan út. En hún stóð sig vel og tók sig vel út. Emilía líka, þær eru ótrúlega góðar saman þarna vinkonurnar. Verst að myndavélin var batteríslaus þannig ég gat ekki tekið neinar myndir en tek þá bara fleiri myndir þegar jólasýningin verður.

Annars er voða lítið af okkur að frétta.

20 vikna sónar lokið

Við vorum að koma úr 20 vikna sónar :) Fæðingarlæknirinn skoðaði allt voða vel og var ánægð. Hún sagði að allt liti vel út og þannig. En við sögðum henni að það hefði líka verið þannig útlitið í 20 vikna sónarnum hjá Andreu. Þá sagði hún að yfirleitt er bara mælt annar upphandleggurinn og annar lærleggurinn. Hún mælti núna báða upphandleggi og framhandleggi og báða lærleggi og kálfa. Hún sagði að þetta væri allt mjög svipað og að hún væri ánægð með allar hreyfingar hjá barninu. Það var líka í lagi með hjartað, heilann, neðri vörina, nýrun og hrygginn. :) Við eigum að koma aftur í sónar eftir 8 vikur. Eftir 28 viku er víst mjög erfitt að skoða þar sem þá eru þau orðin svo stór og hreyfa sig lítið. Læknirinn vildi meina að ekki væri hægt að sjá meira í þrívíðarsónar heldur en hún sá núna. Hún sagði einnig að þær sem væru að gera þrívíðarsónarinn væru ekki þjálfaðar í að finna galla. Þetta væri svona eins og að fara í portrétt myndatöku.

Við fengum síðan að vita kynið og er það önnur stelpa :) Gísli verður s.s. í kvennaveldi :)

Við segjum Andreu fréttirnar af þessu í dag og verður gaman að sjá viðbrögðin hjá henni.