Við vorum að koma úr 20 vikna sónar
Fæðingarlæknirinn skoðaði allt voða vel og var ánægð. Hún sagði að allt liti vel út og þannig. En við sögðum henni að það hefði líka verið þannig útlitið í 20 vikna sónarnum hjá Andreu. Þá sagði hún að yfirleitt er bara mælt annar upphandleggurinn og annar lærleggurinn. Hún mælti núna báða upphandleggi og framhandleggi og báða lærleggi og kálfa. Hún sagði að þetta væri allt mjög svipað og að hún væri ánægð með allar hreyfingar hjá barninu. Það var líka í lagi með hjartað, heilann, neðri vörina, nýrun og hrygginn.
Við eigum að koma aftur í sónar eftir 8 vikur. Eftir 28 viku er víst mjög erfitt að skoða þar sem þá eru þau orðin svo stór og hreyfa sig lítið. Læknirinn vildi meina að ekki væri hægt að sjá meira í þrívíðarsónar heldur en hún sá núna. Hún sagði einnig að þær sem væru að gera þrívíðarsónarinn væru ekki þjálfaðar í að finna galla. Þetta væri svona eins og að fara í portrétt myndatöku.
Við fengum síðan að vita kynið og er það önnur stelpa
Gísli verður s.s. í kvennaveldi
Við segjum Andreu fréttirnar af þessu í dag og verður gaman að sjá viðbrögðin hjá henni.
Gott að það lítur allt vel út. Mikið verður gaman að fá litla skvísu:) ætli Hekla verði ekki öfundsjúk:)
Esther
Til hamingju með það allt saman
Til hamingju með bumbuskvísuna og það er gott að allt lítur vel út.
Kveðja. Ósk
Gott að allt gekk vel…spennandi að fá litla prisnessu ( nr. 3)…Andrea verður örugglega mjög glöð með að fá systir… og ég held að frænka hennar hún Hekla Marey verði líka mjög glöð að fá aðra frænku
kv amma í Efstuhlíð
Glæsilegt að allt lítur vel út. Gísli á eftir að verða alsæll í kvennaríkinu sínu og dekstra ykkur vel.
kv Elísabet Árný
Tilhamingju með með stelpuna
Það verður bara flott að vera með tvær barnapíur þegar strákurinn kemur svo nr. 3;);)
Sjáumst í sundi:)
Til hamingju bara önnur stelpa á leiðinni… ÆÐISLEGT:)
oh yeah!! stelpur rúlla.. innilega til hamingju, þetta verður alveg yndislegt! ekkert smá spennandi og gaman að fá að fylgjast með…