af okkur
jæja Andrea er að reyna á okkur foreldrana, gá hvað hún kemst langt.. minnir stundum á “gelgju”. Þessi hegðun er eiginlega bara svona allt í einu komin, spurning hvort þessi breyting hjá henni sé vegna þess að það er að koma lítil systir eða kannski er hún bara komin á fyrsta “gelgjuskeiðið”. Við reynum að taka á þessu við hana. Átti samt erfitt með mig í gærkvöldi.. svona eftir á, þegar ég fór aðeins að hugsa þetta. Þetta var nú bara frekar fyndið.
En hún fór til augnlæknisins í gær og er niðurstaðan núna sú að hún er enn með verri sjón á vinstra auganu heldur en því hægra. En það munar víst bara einni línu og því ekki þörf á að hún sé með leppinn. Það er víst notaður leppur þegar það munar tveim línum. Hún er með góða þrívíddarsjón sem er mjög gott þar sem maður þarf að hafa góða sjón á báðum augum til að sjá vel þrívíddarmyndir. Svo er mæting aftur í febrúar
Hún bíður spennt eftir litlu systur, er búin að láta okkur pabba sinn skrifa niður nöfn á lista. Þau eru nokkur góð og sum ekki svo góð. Hún samþykkti þó að við myndum ekki skíra litlu systur Pocahontas en vildi samt fá nafnið á listann. Hún vill líka ólm fara í búðir og kaupa bleyjur, diska, glös og pela handa systur sinni. Er búin að segja henni að það sé aðeins of snemmt í þannig innkaup og að hún fái nú pottþétt að koma með þegar ég fer að versla þessa hluti.
Síðasta laugardag fengum við að fylgjast með ballettímanum. það var mjög gaman henni hefur greinilega farið fram síða á síðustu önn. En það var greinilegt hvaða dans henni þótti leiðinlegastur, því þá fór hausinn út á hlið og tungan út. En hún stóð sig vel og tók sig vel út. Emilía líka, þær eru ótrúlega góðar saman þarna vinkonurnar. Verst að myndavélin var batteríslaus þannig ég gat ekki tekið neinar myndir en tek þá bara fleiri myndir þegar jólasýningin verður.
Annars er voða lítið af okkur að frétta.
| Print article | This entry was posted by gudrun on October 22, 2008 at 12:30, and is filed under Fréttir. Follow any responses to this post through RSS 2.0. Both comments and pings are currently closed. |
Comments are closed.
about 1 year ago
… þetta voða litla gæti verið að ég byrjaði að vinna hjá Bluebirdcargo
hehehe
about 1 year ago
about 1 year ago
Bíddu hefur þú ekki aðgang að þessu bloggi til að segja frá þessu sjálfur eða?