Andrea er búin að vera veik núna í tvö daga, við mæðgur höfum því verið heima. Hún er alveg þvílíkt kvefuð og með hita. Samt alveg ótrúlegt hvað hún er búin að tóra í dag. Hún er búin að vera vakandi síðan kl hálf fjögur í nótt. Hún hefur ekkert viljað leggja sig og er búin að vera svo dugleg að dunda sér í dag við að lita á milli þess sem hún horfir á sjónvarpið. Mamma hennar er aftur á móti þokkalega þreytt enda búin að vera svotil vakandi síðan kl hálf tvö í nótt, svaf reyndar eitthvað í sófanum í nótt/morgun á meðan skvísan var að dunda sér. Nú er bara að vona að Andrea sofi í alla nótt og komi sem minnst upp í rúm svo hægt sé að ná upp hvíld til að vera tilbúin í þriðja veikindadaginn.