Fór með Andreu til læknis. Hún er alveg hræðilega hás greyið og hálf raddlaus. Hún er enn með hita, en hann er búinn að lækka aðeins. Hún er ekki með streptakokka og ekkert ofan í lungunum. Þetta er veira sem er í hálsinum og í raddböndunum. Hún andar svona furðulega, bæði af því að hún er stífluð í nefinu og vegna þrengsla í hálsinum. Ekkert hægt að gera nema slappa af og láta sér batna, fá saltvatnsdropa í nefið og svona. Hún verður örugglega orðin góð á mánudaginn.

Brandari dagsins hjá Andreu er þessi:
Einu sinni var kartafla sem fór til læknis.
Hvað var að henni?
Hún var með hósta.
Svo hló hún alveg innilega að þessu. Adda amma kom svo færandi hendi eftir að hafa keyrt okkur til læknisins.. hún kom með karamellusnúð og kókómjólk handa skvísunni. Andrea alveg í skýjunum núna að gæða sér á honum og horfa á Mamma Mia… í þriðja sinn á þrem dögum… maður er orðinn alveg Abba sýrður út í gegn.
Æ hvað þetta er krúttleg mynd af ykkur mæðgum..:)
kveðja
amma í Efstuhlíð